„Mjög stressaður“

Hafsteinn sýnir harðfylgi í riðlakeppninni. stækka

Hafsteinn sýnir harðfylgi í riðlakeppninni.

„Úrslitakeppnin leggst vel í mig, ég er reyndar mjög stressaður fyrir hana, en ætli það sé ekki bara jákvætt. Örugglega ekki neikvætt,“ segir Hafsteinn Gunnlaugsson sem keppir í hraðabraut fyrir Egilsstaðaskóla í úrslitum Skólahreysti.

Þetta er í fyrsta sinn sem lið Egilsstaðaskóla keppir til úrslita í Skólahreysti. Og liðið allt er að keppa í fyrsta sinn fyrir skólann í ár. Hafsteinn átti að keppa í fyrra en vék á síðustu fyrir öðrum keppanda. Það segir hann hafa verið mistök og hafi hann verið gagnrýndur mjög fyrir það úr öllum áttum.

„Við ætlum að standa okkur vel og æfum þrisvar í viku sérstaklega undir úrslitin en erum auk þess öll í öðrum íþróttum og æfum þær með félögum okkar,“ segir Hafsteinn sem keppir í fótbolta og á skíðum.

Í Skólahreysti keppir hann í hraðabraut og segist vera jafn fimur á greinar hennar. „Við erum öll jöfn að getu og í námunda við meðaltöl. Vonandi stöndum við okkur bara vel og njótum styrks frá öflugri stuðningssveit,“ segir Hafsteinn við mbl.is en nemendur í 9. og 10. bekk Egilsstaðaskóla halda til Reykjavíkur með rútu og munu hvetja félaga sína í úrslitakeppninni sem fram fer í Laugardalshöll 29. apríl nk.

Bekkjarfélagar Hafsteins hvöttu hann til dáða.

Bekkjarfélagar Hafsteins hvöttu hann til dáða.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is