Fræknleiki grunnskólanema eykst ár frá ári
Ljóst er af tölfræði yfir meðaltöl úr Skólahreysti undanfarin þrjú ár, að hreysti íslenskra grunnskólanema hefur fleygt fram. Til marks um þetta eru líka metin í einstökum greinum keppninnar sem tekið hafa breytingum ár frá ári.
Meðaltölin hafa batnað bæði í undankeppnunum ár frá ári og einnig í úrslitunum. Þannig náðust að meðaltali 25,9 upphífingar árið 2007. Þeim fjölgaði í 29,3 árið eftir og í 34 í fyrra. Íslandsmetið er 58 upphífingar en það setti Eyþór Ingi Júlíusson úr Myllubakkaskóla í fyrra.
Sama er að segja um armbeygjur, þær voru 34,6 árið 2007, 45 ári seinna og 54 í fyrra. Íslandsmetið er í sérflokki, en í fyrra tók María Ása Ásþórsdóttir úr Heiðarskóla í Reykjanesbæ, tók heil 95 stykki.
Dýfumeðaltalið 2007 var 31,8, árið 2008 var það 32,9 og í fyrra 38. Útlit er fyrir að þetta meðaltal verði bætt í ár, ef ekki öll. Íslandsmet var sett í fyrra, 67, dýfur en í forkeppninni í ár var það bætt og hljóðar nú upp á 79 dýfur. Þar var að verki Valgarð Reynhardsson úr Lindaskóla í Kópavogi.
Meðaltalið fyrir hreystigreip var 2:24 mínútur árið 2007 en sá tími jókst í 2:36 mínútur í fyrra. Undantekningin frá reglunni er að meðaltalið í þessari grein dalaði 2008 og var 2:21 mínúta. Metið í þessari grein tók miklum breytingum í ár. Það var 5:29 mínútur en í í riðlakeppninni í vetur bætti Birta Jónsdóttir úr Varmárskóla í Mosfellsbæ það í 6:28 mín.
Loks er spurning hvort metið fyrir hina 10 greina hraðaþraut stenst átökin í ár. Það er 2:07 mínútur, í eigu Eyþórs Inga Einarssonar og Soffíu Klemensdóttur úr Heiðarskóla í Reykjanesbæ, sem vann úrslitakeppni Skólahreysti í fyrra.
Íþróttakennarar eru sammála um, að tilkoma Skólahreysti hafi aukið áhuga barna og unglinga á hreyfingu stórum. Séu ofangreind meðaltöl góður mælikvarði er ljóst að fræknleiki grunnskólanema eykst ár frá ári.







