Leynivopnið í bílskúrnum

Reynir stjórnaði stuðningssveitinni er liðsfélagar hans kepptu. stækka

Reynir stjórnaði stuðningssveitinni er liðsfélagar hans kepptu.

„Við stefnum hátt þótt við séum í fyrsta sinn í úrslitunum, það þýðir ekkert annað,“ segir Reynir Óskarsson, metnaðarfullur fótboltastrákur úr Þykkvabænum og liðsmaður grunnskólans á Hellu í úrslitum Skólahreysti.

Reynir segir undankeppnina hafa verið nokkuð ljúfa en Helluskóli keppti í lok febrúar og vann Suðurlandsriðilinn. Í öðru sæti varð grunnskóli Bláskógabyggðar og Hvolsskóli í því þriðja.

Reynir segist æfa sig nokkuð vel fyrir úrslitakeppnina en í því skyni hefur hann komið sér upp lyftingatækjum og græjum í bílskúr heimilisins til að æfa dýfir og upphífingar. Það er nokkurs konar leynivopn hans, en upphífingar eru líklegasta hans sterkasta hlið

„Ég æfi mig um það bil annan hvern dag. Það má helst ekki vera oftar því maður verður að vera frískur þegar stóra stundin rennur upp. Liðsfélagar mínir eru einnig duglegir við æfingar en þær stundum við hvert í sínu lagi, nema þegar við erum saman í leikfimitímum,“ segir Reynir.

Því bætir hann við að mjög góð stemmning sé fyrir úrslitum Skólahreysti í grunnskólanum á Hellu. Krakkarnir séu spenntir og muni margir fylgja liðinu í Laugardalshöll 29. apríl en þeir sem ekki komast þangað geta fylgst með í beinni tveggja klukkustunda útsendingu sjónvarps frá keppninni.

Hífingarnar eru sterkasta hlið Reynis.

Hífingarnar eru sterkasta hlið Reynis.

Kraftar í kögglum koma sér vel í hífingum og dýfingum.

Kraftar í kögglum koma sér vel í hífingum og dýfingum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is