Stress á Hellu í 3 vikur eftir niðurstöðunni
Sigurlið Hellu (f.v.) Baldvin Páll Tómasson, Karítas Tómasdóttir, Silja Hjaltadóttir og Reynir Óskarsson.
Við erum vel stemmd undir þetta og það er tilhlökkun í krökkunum. Þetta er í fyrsta sinn sem við erum í úrslitum Skólahreysti og því er spenningurinn meiri hjá okkur en fyrir undankeppnina,“ segir Þorsteinn Darri Sigurgeirsson, íþróttakennari grunnskólans á Hellu.
„Krakkarnir æfa sig eins og hægt er. Við erum ekki með neinar sérstakar æfingar af þessu tilefni og þau sjá aðallega sjálf um að undirbúa sig. Þau eru dugleg við það ásamt því að æfa aðrar íþróttir,“ bætir Þorsteinn Darri við.
Annar strákurinn hefur til að mynda komið sér upp græjum heima í bílskúr til að styrkja sig sérstaklega fyrir sérgreinar sínar, dýfurnar og hífingar. Já, það er metnaður í krökkunum og allir vilja þeir ná sem lengst. En við ætlum fyrst og fremst að hafa gaman af úrslitakeppninni og njóta stundarinnar. Það verður gaman fyrir þau að koma fram í beinni sjónvarpsútsendingu.
Það kom okkur í raun á óvart að við skyldum vinna riðilinn okkar því við vorum nokkuð langt frá því í fyrra og það hefur engin ofuráhersla verið lögð á keppnina af okkar hálfu og hér er skólahreysti til dæmis ekki valgrein eins og víða. Því komu úrslitin skemmtilega á óvart,“ segir Þorsteinn Darri.
Hann segir að haldin hafi verið undankeppni innan skólans til að velja liðið og þar hafi verið reynt að líkja eftir alvörukeppninni eins og hægt var. Þar vildu flestir vera með og kom mikill metnaður í ljós.
Hellukrakkarnir náðu mjög góðum árangri í riðlinum og unnu hann. Þangað komust þó ekki tvö skólalið, Vestmannaeyja og Klausturs, vegna samgönguerfiðleika. Eftir hana þurftum við að bíða í einar þrjár vikur til að vita hvort við kæmumst áfram, eða þar til fyrrnefnd lið höfðu keppt og árangur þeirra verið reiknaður inn í úrslit okkar riðils.
Það voru stressaðar og áhyggjufullar þrjár vikur sem tóku við en í ljós kom að þeim liðnum að sigur okkar var öruggur. Vissulega hjálpaði að þrír krakkanna af fjórum í liðinu voru að keppa annað árið í röð. Þau gengu því mun afslappaðri til leiks, stressið var allt miklu minna en árið áður,“ segir Þorsteinn Darri.
Þegar rætt var við hann var eldgosið nýhafið í Eyjafjallajökli. Hann sagði það ásamt eldgosinu á Fimmvörðuhálsi hafa dreift huga unga fólksins, en það liði vonandi hjá. „Það er og gjósandi stemmning í skólanum vegna úrslitakeppninnar og við förum væntanlega með stóran hóp stuðningsmanna til hennar. Þar verður fjör,“ segir Þorsteinn Darri að lokum.







