Lindaskóli í úrslitum fimmta árið í röð

Lið Lindaskóla fagnar sigri í riðlakeppninni. Á myndinni eru (f.v.) Agnes Þóra Sigþórsdóttir , Karl ... stækka

Lið Lindaskóla fagnar sigri í riðlakeppninni. Á myndinni eru (f.v.) Agnes Þóra Sigþórsdóttir , Karl Kristjánsson, Konný Lára Birgisdóttir og Valgarð Reinhardsson.

„Keppnin leggst mjög vel í okkar lið, við erum full tilhlökkunar að keppa til úrslita í Skólahreysti fimmta árið í röð,“ segir Davíð Ketilsson, einn af íþróttakennurum Lindaskóla í Kópavogi. Lið hans er hið eina sem keppt hefur til úrslita í Skólahreysti frá upphafi.

„Tvisvar höfum við verið í verðlaunasæti. Við unnum keppnina árið 2007 og urðum í öðru sæti árið eftir. Það er mjög góður árangur því mjög öflugir krakkar, úr öllum skólum, hafa ætíð verið að keppa, og svo verður einnig í ár,“ segir Davíð.

Og hann bætir við að lið Lindaskóla sé mjög áhugasamt um að halda heiðri skólans í keppninni á lofti og standa sig vel. „Ef eitthvað er, þá höfum við þurft að hægja á þeim til að þau komi ekki þreytt og uppgefin í úrslitin. Við höfum ekki verið með séræfingar fyrir hópinn undanfarið, heldur lagt á ráðin við þau og bent þeim á sérstakar æfingaaðferðir til að bæta sig í viðkomandi greinum. Þau hafa séð að mestu um sig sjálf og ekkert slakað á.“  

Úrslitakeppnin verður ekki sú fyrsta fyrir einn liðsmanna Lindaskóla, Karl Kristjánsson, heldur sú þriðja. Hann keppti í dýfum og upphífingum undanfarin tvö ár en söðlaði um í ár og keppir í hraðabraut.

Karl er rúmlega höfðinu hærri en aðrir liðsmenn. Hið fornkveðna um að margur sé knár þótt sé smár á vel við um einn félaga hans, Valgarð Reinhardsson, sem er aðeins 13 ára. Sá gerði sér lítið fyrir og setti met í riðlakeppninni í dýfingum og stórbætti gamla metið frá í fyrra.

Hingað til hafa keppendur Lindaskóla komið úr hinum ýmsu íþróttagreinum en á því hefur orðið breyting í ár. Nú eru þeir allir með bakgrunn úr fimleikum en það hefur reynst vel í hreystibraut.

Áhugi fyrir Skólahreysti hefur verið mikill í Lindaskóla og var svo komið fyrir tveimur árum, að nemendur unglingadeildar fóru að fyrra bragði fram á það við skólann, að boðið yrði upp á hreysti sem valfag. Að sögn Davíðs hefur það ekki bara snúist um armbeygjur, hífingar, dýfingar o.s.frv. heldur einnig göngutúra, fjallgöngur og skíðaiðkun, svo eitthvað sé nefnt.

„Við gerum okkur vonir um góðan árangur, helst að verða meðal þriggja efstu skólanna í Laugardalshöllinni. Það verður topp árangur ef það tekst. Við urðum í níunda sæti í fyrra en krakkarnir hafa verið að bæta sig svo við erum ekkert nema bjartsýn,“ segir Davíð Ketilsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is