„Ég ætla að bæta dýfingametið“
„Ég ætla að bæta dýfingametið og bæta mig í hífingum líka,“ segir Valgarð Rheinhardsson, nemi í Lindaskóla í Kópavogi. Sá knái 13 ára piltur gerði sér lítið fyrir og stórbætti metið í dýfingum í riðlakeppni Skólahreysti í vetur. Og áformar að bæta það aftur í úrslitakeppninni í Laugardalshöll eftir viku.
„Úrslitakeppnin leggst vel í mig, ég hef æft mig vel frá í riðlakeppninni. Ég stunda fimleika hjá Gerplu og æfi mig sex daga í viku. Þar tek ég hífingar og dýfingar með öðrum þrekæfingum,“ segir Valgarð sem kveðst hafa stundað fimleika í nokkur ár. Þaðan hefur hann kraftinn sem fleytti honum svo langt í Skólahreysti. Og þótt hann hefði styrk til að keppa í fyrra var hann of ungur, en í Skólahreysti keppa nemendur í 8. til 10.bekk.
Liðsfélagar Valgarð í Lindaskóla stunda einnig allir fimleika en fjórmenningarnir æfa á mismunandi tímum og kveðst hann því hitta þá sjaldnast á æfingum. Lið skólans er í úrslitum fimmta árið í röð, sem er einsdæmi. Einu sinni hefur skólinn unnið Skólahreysti, eða 2007 og árið eftir varð hann í öðru sæti.
Liðið ætlar sér sigur í úrslitunum
Og það stóð ekki á svari er Valgarð var spurður hvert markmið liðsins væri nú. „Við ætlum bara að vinna þetta.“ Annars sagðist hann ætla hafa gaman að keppninni og það gilti um liðið allt.
Hann sagði tilfinninguna hafa verið góða er dýfingametið lá í valnum en stuðningsmenn Lindaskóla báru hann á herðum sér af fögnuði strax á eftir. „Það var gaman að setja metið. Ég var reyndar svolítið stressaður er strákur sem var á eftir mér nálgaðist það óðum. Ég óttaðist að hann myndi ná því,“ segir Valgarð.
Hann gerði sér og tók 79 dýfur en gamla metið var 67, sett í fyrra. Piltur sem keppti á eftir honum í sama riðli hjó nærri metinu, náði 77 dýfum áður en hann sprakk. Valgarð segist bjartsýnn á að bæta metið í úrslitunum en þá segist hann ætla að taka að minnsta kosti 80. Í upphífingum náði hann 52 en segist muni taka fleiri í úrslitunum.
Framarlega í Finnlandi
Og víst mun klapplið Lindaskóla standa með sínum samnemendum og styðja þá í úrslitakeppninni; ekkert skorti á það í riðlinum. „Við erum með mjög kraftmikið klapplið,“ sagði Valgarð.
Þessi frækni fimleikamaður er nýkominn heim frá Finnlandi frá keppni á Norðurlandameistaramóti unglinga í fimleikum. Þar gerði hann sér lítið fyrir og varð í fjórða sæti á þremur áhöldum. „Það var meira en ég bjóst við og hvetur mig til dáða,“ sagði Valgarð að lokum.







