„Höldum heiðri Hafnarfjarðar á lofti“

Lið Lækjarskóla sem vann sig inn í úrslitin skipa Dóra Sóldís Ásmundsdótir, Þorbjörg Hekla Ingólfsdóttir, ... stækka

Lið Lækjarskóla sem vann sig inn í úrslitin skipa Dóra Sóldís Ásmundsdótir, Þorbjörg Hekla Ingólfsdóttir, Adam Freysson og Sindri Snær Freysson.

„Hafnarfjörður er mikill íþróttabær og við ætlum að halda heiðri hans á lofti,“ segir Orri Þórðarson um þátttöku liðs Lækjarskóla í úrslitakeppni Skólahreysti á fimmtudaginn kemur.

„Okkar fólk mun fjölmenna í Laugardalshöll og þar verður mjög gaman. Ég reikna með að unglingadeildin mæti á staðinn eins og hún leggur sig. Það verða eflaust nokkrar fullar rútur sem fara héðan frá skólanum,“ bætir Orri við.

Lækjarskóli var ekki í úrslitum í fyrra og segir Orri sigur liðsins í riðlakeppninni hafa kveikt mikinn áhuga fyrir Skólahreysti. Hann verði var við mikinn áhuga krakka á að spreyta sig og margir nemendur hans hafa komið að máli við Orra og sagst ætla stefna á að komast í liðið að ári.

Þá sýni kennarar og starfsfólk skólans keppninni mikinn og vaxandi áhuga og því aldrei að vita nema Lækjarskóli eigi eftir að láta enn frekar að sér kveða í Skólahreysti framtíðinni.

Gerum okkar allra besta

„Við erum í sjálfu sér með engin leynivopn. Í undankeppninni náði Dóra Sóldís Ásmundsdóttir fleiri armbeygjum í riðli okkar en nokkur annar og hún ætti að vera aftur sterk í þeirri grein. Þá erum við sterk í hraðaþrautinni. En það sem mestu skiptir upp á heildarkeppnina að gera er að hala alls staðar inn stig; vera sem jafnastur.

Eina markmiðið sem við setjum okkur er að gera okkar besta og sjá svo til í lokin hvað það dugar,“ segir Orri. Hann segir stúlkurnar í liðinu æfa fimleika hjá Björk og strákana stunda frjálsíþróttir og skylmingar hjá FH.

Skólahreysti frábært framtak

„Þau æfa sem sagt öll á fullu, hvert með sínu íþróttafélagi og við höfum látið það eiginlega duga að mestu. Þau hafa að vísu fengið það heimaverkefni að styrkja sig sérstaklega fyrir keppnisgreinar Skólahreysti, svo sem æfa armbeygjur og hífingar svo og klifra í köðlum. Við búum ekki við þær aðstæður að geta æft hraðaþrautina sérstaklega.

„Mér finnst þetta uppátæki vera frábært framtak, ekki síst nú til dags, á tímum þegar talað er mikið um nauðsyn þess að börn og unglingar hreyfi sig meira. Það er athyglisvert hvað framkvæmd mótsins gengur vel og hratt fyrir sig. Ég vona að Skólahreysti eigi eftir að dafna og eflast í framtíðinni. Þetta ætti eiginlega að vera skylda í öllum skólum,“ sagði Orri Þórðarson að lokum.

 
Hin 14 ára gamla Dóra Sóldís Ásmundardóttir er öflug í armbeygjum, hér eru þær orðnar ...

Hin 14 ára gamla Dóra Sóldís Ásmundardóttir er öflug í armbeygjum, hér eru þær orðnar 65.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is