Hraðabrautin sérgrein Lágafellsskóla
Hið sterka lið Lágafellsskóla (f.v.), Elvar Baldvinsson, Jóhanna Embla Þorsteinsdóttir, Telma Þrastardóttir og Andri Jamil Ásgeirsson.
„Það ríkir mikil eftirvænting í hópnum og í bænum öllum. Við höfum verið með í keppninni öll árin sem hún hefur farið fram en þetta er í fyrsta sinn sem við keppum til úrslita.“
Þannig komst Steinunn Þorkelsdóttir íþróttakennari við Lágafellsskóla að orði við mbl.is. Hún segir nemendur afar áhugasama um skólahreysti. Greinin sé valfag í skólanum auk hefðbundinnar íþróttakennslu og komist eiginlega færri að en vilja. Þær æfingar hafa farið fram í afar góðri aðstöðu í sal World Class. „Krakkarnir sjálfir vilja fá meiri íþróttir í skólanámið, sá áhugi kemur frá þeim sjálfum,“ segir hún.
Hún bætir því við, að það hafa einnig eflt áhuga, að skólahreystitæki hafi verið keypt til Lágafellsskóla. Muni miklu að krakkarnir geti æft í þessum tækjum, til dæmis hreystigreip, dýfur og hífingar.
„Okkar keppendur eru úr fimleikum, frjálsíþróttum, handbolta og fótbolta. Þau hafa verið að æfa sig í allan vetur og það hefur myndast skemmtileg umgjörð utan um þetta. Fyrir úrslitakeppnina hafa þau undirbúið sig af kappi allt frá því í riðlakeppninni,“ segir Steinunn.
Í riðlinum setti lið Lágafellsskóla, Telma Þrastardóttir og Kjartan Elvar Baldvinsson, besta tímann í hraðabraut í undankeppninni, að meðtöldum riðlunum öllum. Henni luku þau á 2 mínútum og 19 sekúndum. Þá náði Andri Jamil Ásgeirsson flestum upphífingum í riðlinum svo á þessu sést að Lágafellsskóli teflir fram feikna sterkri sveit.
„Það hefur verið að skapast rosaleg stemmning fyrir úrslitakeppninni, enda Mosfellsbær mikill íþróttabær. Og við munum meðal annars fá stuðning frá nemendum í hinum grunnskóla bæjarins, Varmárskóla,“ segir Steinunn Þorkelsdóttir og ekki að heyra á öðru hjá henni, en að tilhlökkun sé mikil í Mosfellsbæ eftir úrslitakeppni Skólahreysti sem fram fer í Laugardalshöllinni næstkomandi fimmtudag. Sýnt verður frá keppninni í beinni útsendingu sjónvarps.









