Vel á sig komnir krakkar
Lið Austurbæjarskóla (f.v.), Alexander Jens Ásgeirsson, Kristjana Björk Barðdal, Hróbjartur Pálmi Hilmarsson og Edda Líf Jónsdóttir.
„Það hefur ekki verið nógu mikill áhugi á þessu í skólanum, og ekki verið auðvelt að fá keppendur. Kannski er það vegna þess að það er ekki mikil íþróttahefð í skólanum.
Kannski stendur það til bóta þar sem við erum nú í úrslitum Skólahreystinnar í fyrsta sinn. Alla vega hefur verið að myndast góð stemmning fyrir lokakeppninni innan veggja skólans.“
Þannig mælir Árni Brynjólfsson, íþróttakennari við Austurbæjarskóla, sem vann sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni Skólahreysti með sigri í öðrum riðli undankeppninnar í Reykjavík, með hálfu stigi.
Lokakeppnin fer fram næstkomandi miðvikudag í Laugardalshöll og segir Árni það markmiðið að krakkarnir bæti árangur sinn frá í riðlakeppninni. Koma verði bara í ljós hvað það dugar langt. Hann segir sterkustu greinar sinna manna vera hífingar og dýfingar og hreystigreip.
„Krakkarnir í okkar liði eru á kafi í öðrum íþróttum og því hefur ekki verið mikið um æfingar þar fyrir utan. Álagið á þau var það mikið fyrir keppnina. Þau sjá að mestu um sig sjálf en eftir að við komust áfram úr riðlinum lagði ég fyrir þau að taka aukalega æfingar meðfram til að styrkja sig fyrir hreystigreinarnar, eins og til dæmist með upphífingum og armbeygjum.
Við göngum til leiks á fimmtudaginn með því hugarfari fyrst og fremst að njóta augnabliksins og hafa gaman af. Það eru mjög duglegir krakkar sem skipa liðið og vel á sig komin, heilbrigð á líkama og sál,“ sagði Árni Brynjólfsson.









