Atlögur eflaust gerðar að Íslandsmetum
Atlögur verða eflaust gerðar að Íslandsmetum í einstökum greinum Skólahreysti í úrslitakeppninni í Laugardalshöll annað kvöld. Tveir keppendur hafa sett sér það sem takmark að slá þar met.
Í samtali við mbl.is hafa Valgarð Rheinhardsson, nemi í Lindaskóla í Kópavogi og Andri Jamil Ásgeirsson úr Lágafellsskóla sagst ætla reyna setja Íslandsmet í sínum greinum, upphífingum og dýfingum. Til þess þarf Andri að bæta sig talsvert en Valgarð hefur við eigið met úr riðlakeppninni að glíma.
„Ég stefni að því að bæta Íslandsmetið í upphífingum,“ sagði Andri Jamil, kraftmikill 16 ára piltur úr Lágafellsskóla, sem á í fyrsta sinn lið í úrslitakeppninni. Andri hóf sig 45 sinnum upp fyrir slána í riðlakeppninni.
Íslandsmetið er 58 og þarf Andri Jamil því að bæta sig talsvert eigi honum að takast ætlunarverkið. Metið er frá í fyrra og í eigu Eyþórs Inga Júlíussonar úr Myllubakkaskóla.
Æfir í bílskúrnum
Hann fær eflaust keppni frá sterkum strák úr Þykkvabænum, Reyni Óskarssyni, liðsmanni grunnskólans á Hellu, sem einnig á lið í fyrsta sinn í úrslitum Skólahreysti.Reynir hóf sig einnig 45 sinnum til lofts og til að vera sem best undir úrslitinn búinn kom hann sér upp lyftingatækjum og græjum í bílskúr heimilisins til að æfa dýfur og hífingar.
„Ég æfi mig um það bil annan hvern dag. Það má helst ekki vera oftar því maður verður að vera frískur þegar stóra stundin rennur upp,“ sagði Reynir við mbl.is
Valgarð líka öflugur í hífingunum
Sem fyrr segir stefnir Valgarð Rheinhardsson einnig að meti en þar er á ferð snerpumikill fimleikapiltur og liðsmaður Lindaskóla í Kópavogi. Hann tók 79 dýfur í undankeppninni og stórbætti þá gamla metið sem var 67 dýfur og frá í fyrra.„Úrslitakeppnin leggst vel í mig, ég hef æft mig vel frá í riðlakeppninni. Ég ætla að bæta dýfingametið og bæta mig í hífingum líka,“ sagði Valgarð. Og hann hóf sig raunar oftar upp en þeir Andri Jamil og Reynir, eða 52 sinnum. Því má ætla að hann sé allt eins líklegur til að sigrast á Íslandsmetinu í þeirri grein og þeir.
Valgerð er sem áður segir fimleikamaður, en Reynir stundar fótbolta og Andri Jamil mótokross.
Birta fjarri góðu gamni
Í riðlakeppninni var sett eitt Íslandsmet í kvennagreinum, eða svonefndri hreystigreip sem gengur út á að hanga sem lengst á lofti neðan úr slá. Að þessu sinni hékk Birta Jónsdóttir úr Varmárskóla 6:28 mínútur en gamla metið, frá í fyrra, var 5:29 mín. Þar sem skóli Birtu komst ekki áfram verður hún að láta sér nægja að fylgjast með keppninni í ár og hvetja sveitunga sína úr Lágafellsskóla til dáða.
Í riðlinum í ár settu Telma Þrastardóttir og Kjartan Elvar Baldvinsson besta tíma vetrarins í hraðabraut. Henni luku þau á 2 mínútum og 19 sekúndum. Í þeirri grein er talsverður spotti í metið, en það er 2:07 mínútur, í eigu Eyþórs Inga Einarssonar og Soffíu Klemensdóttur úr Heiðarskóla í Reykjanesbæ.







