Frítt inn og allir velkomnir í Laugardalshöll

Samnemendur keppnisliðanna í Skólahresyti hafa aldrei látið sitt eftir liggja, heldur stutt vel við bakið ... stækka

Samnemendur keppnisliðanna í Skólahresyti hafa aldrei látið sitt eftir liggja, heldur stutt vel við bakið á sínum.

Ókeypis aðgangur er að Laugardalshöll þegar úrslitakeppni Skólahreysti fer þar fram annað kvöld og eru allir velkomnir. Húsið verður opnað áhorfendum frá klukkan 19.

Úrslitamótið er með alveg sama sniði og undankeppnirnar. Allt gengur eins fyrir sig og mótið tekur jafn langan tíma. Það byrjar klukkan 20:00 og klárast um klukkan 21:50.

Skólahreysti er liðakeppni grunnskóla í kraftagreinum og hraðaþraut. Hvert lið er skipað tveimur stúlkum og tveimur drengjum. Keppnin hefur farið fram árlega síðan 2005 að frumkvæði hjónanna Andrésar Guðmundssonar og Láru B. Helgadóttur.

Fyrsta árið kepptu sex skólalið, en að þessu sinni voru 120 skólar skráðir til leiks og hafa aldrei verið fleiri. Íþróttakennarar og forsvarsmenn keppnisliða segja áhuga í skólunum vax ár frá ári og því megi allt eins búast við að skólum sem tefli liði til keppni eigi enn eftir að fjölga.

Reiðhjól og peningar í verðlaun

Úrslit í Skólahreysti fara fram í beinni útsendingu ríkissjónvarpsins og má nefna að Magnús Scheving, forsprakki Latabæjar, verður þulur í útsendingunni. Til úrslita að þessu sinni keppa Austurbæjarskóli í Reykjavík, Dalvíkurskóli, Egilsstaðaskóli, Giljaskóli á Akureyri, grunnskólinn Hellu, grunnskólinn á Ísafirði, Heiðarskóli í Reykjanesbæ, Lágafellsskóli í Mosfellsbæ, Lindaskóli í Kópavogi, Lækjarskóli í Hafnarfirði, Varmalandsskóli í Borgarfirði og Ölduselsskóli í Reykjavík.

Sigurliðið fær fjögur reiðhjól úr Markinu frá Mjólkursamsölunni (MS). Fyrstu þrjú liðin fá einnig peningaverðlaun frá MS sem renna til nemendafélaga skólanna. Efsta liðið fær 200.000 þúsund kr., hið næsta 100.000 þúsund kr. og fyrir þriðja sæti eru veittar 50.000 þúsund krónur. Ennfremur fá þrjú efstu liðin eignarbikara.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is