Leggja land undir fót í úrslitakeppnina
Sum keppnisliðanna í úrslitum Skólahreysti eiga um langan veg að fara. Það láta þau sér ekki fyrir brjósti brenna og heldur ekki nemendur viðkomandi skóla, sem ætla að fjölmenna til Reykjavíkur og styðja við bakið á sínu liði í Laugardalshöll.
Þannig munu margar rútur til dæmis stefna frá Ísafirði, Dalvík Akureyri og Egilsstöðum til Reykjavíkur vegna úrslitanna, sem fram fara í Laugardalshöll annað kvöld, fimmtudag.
Þær verða fullar af unglingum efstu bekkja viðkomandi skóla sem hvetja munu skólasystkini sín til dáða. Þeir láta langa ferð ekki aftra sér frá því að taka þátt.
Stuðningsmannalið skólanna létu virkilega til sín taka og vöktu mikla athygli í riðlakeppninni. Mun þetta í fyrsta sinn sem klapplið koma með keppnisliðunum utan af landi í úrslitakeppnina. Ástæðan er vaxandi stemningin sem hefur verið að skapast fyrir Skólahreysti úti um allt land.Innansveitarkróníkur á hilluna
Og fyrir úrslitakeppnina hefur allur innanbæjarrígur milli skóla hefur verið lagður af. Þannig munu krakkar úr öllum hverfum Hafnarfjarðar mæta og hvetja lið Lækjarskóla til dáða.
Sömuleiðis ætla nemendur í Varmárskóla í Mosfellsbæ að mæta til þess að styðja liðið frá Lágafellsskóla í keppninni þótt þeir hafi beðið lægri hlut fyrir því í undankeppninni. Aðstandendur Skólahreysti eiga því allt eins von á því að fjölmennara verði á áhorfendapöllum og stúkum en nokkru sinni fyrr í úrslitakeppninni annað kvöld.
Hafa haft góðan tíma til að undirbúa sig
Í undankeppninni þykja lið Lindaskóla í Kópavogi, Lágafellsskóla í Mosfellsbæ og Heiðarskóla í Reykjanesbæ hafa staðið sig einna best. Hins vegar hefur reynslan sýnt, að ekkert sé öruggt þegar í úrslitin sé komið. Þó nokkuð langur tími sé frá því riðlakeppninni lauk og í millitíðinni hafa keppendur haft góðan tíma til þess að undirbúa sig sem best og bæta styrk sinn.
Af þessum sökum þykir erfitt að segja til um nokkur úrslit, þau séu ekki ráðin fyrirfram og allt geti gerst.







