Úrslitin eru óskrifað blað

Skólasystkyn Birtu Jónsdóttir úr Varmárskóla báru hana á herðum sér eftir hreystigreiparmetið. stækka

Skólasystkyn Birtu Jónsdóttir úr Varmárskóla báru hana á herðum sér eftir hreystigreiparmetið.

Morgunblaðið eftir Steinþór Guðbjartsson

Úrslitakeppni 12 grunnskólaliða í Skólahreysti fer fram í Laugardalshöll annað kvöld og er mikil spenna í loftinu, jafnt í skólunum sem viðkomandi bæjarfélögum.

Hjónin Andrés Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir hafa haft umsjón með keppninni frá upphafi. Lára segir að í nógu sé að snúast fyrir keppnina og tækjum verði komið fyrir í Höllinni í nótt.

„Aðalspennan er í skólunum,“ segir hún. Lára bætir við að lið og stuðningsmenn frá fjarlægari stöðum eins og Egilsstöðum, Ísafirði og Dalvík eigi langa ferð fyrir höndum og ætla megi að spennan magnist eftir því sem nær dregur.

Lið Lindaskóla, Lágafellsskóla og Heiðarskóla stóðu sig einna best í riðlakeppninni en Lára segir að ekkert sé öruggt þegar í úrslitin sé komið. Þó nokkuð langur tími sé frá því riðlakeppninni lauk og því hafi keppendur haft góðan tíma til þess að undirbúa sig fyrir úrslitin, bæta það sem hafi þurft að bæta og styrkja sig á allan hátt. „Þetta er alltaf spurning um hvað keppendur hafa lagt mikið á sig,“ segir hún. „Úrslitakeppnin er því alveg óskrifað blað.“

Mikill stuðningur

Stuðningsmannalið skólanna vöktu mikla athygli í riðlakeppninni. Lára segir að í fyrsta sinn mæti nú stuðningsmannalið með keppnisliðunum utan af landi í úrslitakeppnina. Ástæðan sé stemningin sem hafi skapast í kringum keppnina úti um allt land.

Lára bendir líka á að bæjarfélögin standi saman. „Krakkar í Hafnarfirði ætla að mæta til þess að styðja sinn skóla og krakkarnir í Varmárskóla mæta til þess að styðja liðið frá Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Þetta er nýtt og ég efast ekki um að þetta verður fjölmennasta úrslitakeppnin hingað til.“

Tvö glæsileg met standa eftir riðlakeppnina í vetur. Birta Jónsdóttir úr Varmárskóla hékk á slá í sex mínútur og 28 sekúndur, en Sigurlaug Sigurðardóttir úr Vogaskóla átti fyrra metið, hékk í 5:27 mínútur 2006. Valgarð Reinardsson úr Lindaskóla náði 79 dýfum og sló ársgamalt met Pálma Rafns Steindórssonar úr Foldaskóla, 67 dýfur.

Beint í Sjónvarpinu

Úrslitakeppnin í Skólahreysti verður sýnd beint í Sjónvarpinu. Útsendingin hefst klukkan 20:00 annað kvöld og er gert ráð fyrir að henni ljúki um kl. 21:50.

Austurbæjarskóli, Ölduselsskóli, Grunnskólinn á Hellu, Egilsstaðaskóli, Dalvíkurskóli, Giljaskóli, Varmalandsskóli, Grunnskólinn á Ísafirði, Lindaskóli, Heiðarskóli/Reykjanesbæ, Lágafellsskóli og Lækjarskóli í Hafnarfirði keppa í úrslitunum að þessu sinni.

Skólafélagar Valgarðs samfögnuðu honum eftir metsláttuna.

Skólafélagar Valgarðs samfögnuðu honum eftir metsláttuna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is