Íþróttir
|
Skólahreysti
| Morgunblaðið
| 29.4.2010
| 5:30
| Uppfært
6:25
Magnús Scheving í Skólahreysti
Magnús Scheving, íþróttaálfur í Latabæ með meiru, lýsir úrslitakeppni Skólahreysti ásamt Ásgeiri Erlendssyni í beinni útsendingu í Sjónvarpinu í kvöld, en Magnús hefur ekki áður komið að keppninni.
„Þetta er skemmtileg tilbreyting,“ segir Lára B. Helgadóttir, sem hefur séð um keppnina frá byrjun ásamt eiginmanni sínum, Andrési Guðmundssyni. „Hann er prímus mótor í hreysti ungra barna og Skólahreysti er framhald af því sem hann gerir í Latabæ.“
Úrslitakeppnin fer fram í Laugardalshöll í dag og hefst klukkan 20. Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi og kenndur við hljómsveitina Í svörtum fötum, sá um kynninguna í fyrra og heldur uppteknum hætti, en Felix Bergsson tekur sjónvarpsviðtöl við keppendur sem fyrr.
Að sögn Láru tóku 672 keppendur þátt í riðlakeppninni og um 10.000 áhorfendur hafa fylgst með í íþróttahúsunum, en gert er ráð fyrir 3.000 til 5.000 áhorfendum í kvöld.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







