Liðugir í Lindaskóla unnu
Lið Lindaskóla fagnaði sigrinum. Einn afreksmanna skólans, Valgarð Reinhardsson, fyrir miðri mynd og hampar glæsilegum bikarnum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Skólahreysti reynir á fjölmarga þætti svo sem armbeygjur og hreystigrip, sem stúlkur keppa í, og upphífingum og dýfum sem eru keppnisgreinar pilta. Bæði kynin keppa í hraðaþraut.
Margir þóttu sýna frábæra takta í gærkvöldi en sérstaka eftirtekt vakti Valgarð Reinhardsson úr liði Lindaskóla sem sigraði í dýfum og varð í 2. sæti í upphífingum eftir að hafa náð 81 slíkri.
Lögðu allt í sölurnar
„Ég vissi fyrir keppni að við í Lindaskóla værum að keppa við sterk lið og vissi því ekki hvaða árangri við gætum náð. En þá var ekki annað að gera en gefa sig allan í þetta og stefna að sigri sem við náðum,“ sagði Karl Kristjánsson, einn keppenda úr liði Lindaskóla.
„Erfiðasti hluti keppninnar var að lesa sig upp á kaðli,“ segir Karl sem bætir við að stífar æfingar hafi legið að baki úrslitakeppninni og þær hafi svo sannarlega skilað árangri.
Skólar úr Kópavogi sigursælir
Þetta er í fjórða sinn á sex árum sem skóli úr Kópavogi fer með sigur af hólmi í Skólahreysti. Lindaskóli vann einnig árið 2007 en 2006 vann Salaskóli og í fyrstu keppninni, árið 2005, fór Hjallaskóli með sigur af hólmi.
Í fyrra vann Heiðarskóli úr Reykjanesbæ og árið 2008 vann Hagaskóli sem er eini reykvíski sigurvegarinn í Skólahreysti til þessa.







