Árangurinn er ævintýri

Andrés Guðmundsson og Lára Berglind Helgadóttir ásamt börnum sínum en Andrés er framkvæmdastjóri Skólahreysti MS ... stækka

Andrés Guðmundsson og Lára Berglind Helgadóttir ásamt börnum sínum en Andrés er framkvæmdastjóri Skólahreysti MS og hefur þróað og stýrt keppninni í samstarfi við Láru, eiginkonu sína. mbl.is/RAX

„Mér finnst ótrúlegt að sjá hvernig krakkarnir bæta alltaf árangurinn frá einu árinu til annars. Það hefur sömuleiðis verið ævintýri líkast að sjá hvernig þessari keppni hefur vaxið ásmegin með hverju árinu og þátttakendum fjölgað jafnt og þétt,“ segir Andrés Guðmundsson.

Lokakeppni Skólahreysti 2010 var haldin sl. fimmtudagskvöld og var sýnd í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Tólf lið kepptu til úrslita þetta kvöld og voru fjórir í hverju liði, þannig að keppendur voru alls 48 talsins.

Á fyrri stigum voru haldnar alls tíu undankeppnir vítt og breitt um landið, sem 700 nemendur úr efstu bekkjum grunnskólanna tóku þátt í. Þar á undan var nokkurs konar forval innan skólanna sjálfra. Telur Andrés Guðmundsson, sem er framkvæmdastjóri Skólahreysti, líklegt að um 4.000 skólakrakkar komi að keppninni með einhverjum hætti.

Kröftugur kollhnís

Sjónvarpsútsendingar frá Skólahreysti hafa vakið mikla athygli. Kappkostað er að sníða fyrirkomulag keppninnar að sjónvarpsmiðlinum sem slíkum; það er að allt gangi hratt fyrir sig og spennan liggi í loftinu.

„Þetta eru ótrúlega öflugir krakkar,“ segir Andrés sem gerir að umtalsefni góðan árangur sem nokkrir keppenda hafa náð. Valgarð Reinhardsson úr Lindaskóla í Kópavogi sýndi til dæmis mikil tilþrif í lokakeppninni þegar hann náði alls 81 dýfu og sló þar með Íslandsmet. Þá unnu keppendur Lágafellsskóla í Mosfellsbæ þá sem komu úr Lindaskóla í Kópavogi í hraðaþrautinni þar sem kröftugur kollhnís á lokasprettinum reið baggamuninn.

„Það hefur verið ánægjulegt að sjá þessa keppni, sem ég kom af stað og er þess vegna nánast eins og barnið mitt, vaxa og dafna og þátttökuna verða stöðugt meiri. Fyrstu keppnina héldum við árið 2005 og uppgangurinn síðan hefur verið nánast ævintýralegur og áhuginn er alltaf að aukast,“ segir Andrés Guðmundsson.

Andrés Guðmundsson fylgist með að útfærslan sé rétt.

Andrés Guðmundsson fylgist með að útfærslan sé rétt. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Valgarð Reinhardsson Lindarskóla setti met í dýfingum.

Valgarð Reinhardsson Lindarskóla setti met í dýfingum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is