Enginn íþróttaviðburður með aðra eins stemningu

Guðmundur Gunnarsson þáttastjórnandi. stækka

Guðmundur Gunnarsson þáttastjórnandi. Kristinn Ingvarsson

Vikulegir þættir hjá ríkissjónvarpinu þar sem sagt verður frá hápunktum undanriðla. Öllu verður tjaldað til í beinni útsendingu frá úrslitakeppninni.

Þetta fyrirbæri sem Skólahreysti er hefur vaxið miklu meira en nokkurn hefði órað fyrir. Stemninguna sem myndast á keppnunum held ég að ekki einu sinni atvinnumenn í íþróttum gætu látið sig dreyma um og enginn íþróttaviðburður á Íslandi sem jafnast á við þá upplifun að fylgjast með lokakvöldi keppninnar,“ segir Guðmundur Gunnarsson sjónvarpsmaður.

Guðmundur mun stýra vikulegum þáttum um Skólahreysti. „Á þriðjudögum verðum við með 30 mínútna þætti og fjöllum um tvo undanriðla í hvert sinn. Við fáum til okkar góða gesti sem krakkarnir ættu að þekkja, leyfum þeim að spreyta sig í þrautabrautinni auk þess að setjast niður með okkur í stúdíóinu,“ útskýrir Guðmundur. „Við ræðum við þjálfara og keppendur, sýnum myndir af góðum tilþrifum bæði þátttakenda og stuðningsliða, og skoðum hvernig keppnin er undirbúin í skólum hringinn í kringum landið. Öllu verður svo tjaldað til í úrslitakeppninni með tveggja klukkustunda langri beinni útsendingu.“

Veruleg áskorun

Guðmundur smitaðist af áhuga á Skólahreysti gegnum son sinn, en sonurinn er mjög mikill aðdáandi keppninnar þó svo hann eigi enn langt í að ná aldri til að taka sjálfur þátt í henni. „Ég á líka tvo systrasyni þar sem sagan er sú sama, og nánast sama í hvaða grunnskóla maður kemur að Skólahreysti er einn af hápunktum ársins,“ segir Guðmundur. „Það er líka hreint ótrúlegt að fylgjast með hversu mikill kraftur getur verið í krökkunum, og um að ræða verulega áskorun sem reynir bæði á líkamlegan og andlegan styrk. Margir æfa markvisst og stíft allan veturinn, og hafa líka stuðning alls skólans á bak við sig.“

Krafturinn í æskunni

Að sögn Guðmundar er ákaflega jákvætt að sjá hvernig Skólahreysti dregur fram það besta í ungmennum landsins. „Ég held það þurfi ekki að neyða neinn til að taka þátt í þessari keppni. Þarna hefur tekist að búa til umgjörð sem höfðar mjög til krakkanna og sýnir kannski að ef við sköpum þeim réttu tækifærin þá leita þau í skemmtilega og holla hreyfingu,“ segir hann. „Það gerist oft að helst er talað um æskuna á neikvæðu nótunum og rætt um unglingavandann, en Skólahreysti hefur sýnt og sannað hversu margt gott er í gangi hjá ungmennunum, og hvers þau eru megnug.“

Guðmundur nefnir hvað keppni eins og Skólahreysti getur haft mikið forvarnargildi, bæði með því að hvetja til heilbrigðrar hreyfingar og með því að efla félagslega þátttöku, en keppnin snýst ekki síst um liðsanda og góðan keppnisanda. „Skólahreysti snýst, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki um að skara fram úr heldur að vera með, vinna saman, og að allir leggist á eitt. Á keppnina mætir hver einasti kjaftur til að styðja lið síns skóla og þeir sem ekki keppa eru þeim mun duglegri að klæða sig í búninga, mála sig í litum skólans og æfa söngva til að hvetja sitt fólk áfram.“ ai@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is