Hleypir öðrum að en boltaíþróttunum

Jón Pétur Zimsen. stækka

Jón Pétur Zimsen. Kristinn Ingvarsson

Réttarholtsskóli hefur verið með í Skólahreysti frá upphafi og sjálfur hef ég tekið þátt í undirbúningnum undanfarin fimm til sex ár enda mikill áhugamaður um almenna hreysti,“ segir Jón Pétur Zimsen og bætir við að hann sé einstaklega ánægður með framtakið hjá þeim Andrési og Láru og Skólahreysti sé fyrirmyndar viðburður.

„Þetta hleypir líka öðrum að en í þessum hefðbundnu boltaíþróttum sem eru oft yfirgnæfandi í umfjöllun og eru ráðandi í samfélaginu öllu,“ segir Jón.

„Þetta höfðar til miklu breiðari hóps en einungis handbolti, körfubolti og fótbolti. Þarna fá krakkar sem eru í þessum greinum sem minna ber á að njóta sín, greinum á borð við sund, fimleika, badminton og íshokkí til dæmis. Svo er engin kynjaslagsíða í keppninni heldur, svo þetta er allt til fyrirmyndar.

Líkamsræktarval í boði

Jón segir eftirvæntinguna hjá nemendum skólans vera mikla fyrir Skólahreysti ár hver.

„Við höldum íþróttadag hjá okkur á vorin og þá höldum við keppni í mörgum af þessum greinum, til að mynda upphífingum og armbeygjum og hraðabraut. Þeim krökkum sem standa sig vel þar er svo hóað saman á haustin og við förum og æfum talsvert í Sporthúsinu, á æfingabrautinni sem er þar. Svo veljum við liðið í kjölfarið, venjulega í desemberbyrjun,“ segir Jón.

„Valið er útkljáð með keppni, mæling í hraðabrautinni, á armbeygjum, upphífingum og hangi. En svo eru alltaf nokkrir varamenn svo það eru fullt af krökkum sem taka þátt í þessu. Það eru kannski tíu af hvoru kyni sem taka þátt í undankeppninni en allur skólinn tekur auðvitað þátt í íþróttadeginum.“

Nemendur Réttarholtsskóla hafa mögleika á að stunda líkamsræktarval innan skólans, sem hluta af náminu.

„Þar er hægt að nýta tímann og æfa sig fyrir keppnina. Krakkarnir sem eru í liðinu okkar hafa svo aðgang að íþróttahúsinu okkar eins og þau vilja og geta æft sig. Við erum með fína aðstöðu.“

Mikil og góð stemning

Jón tekur undir það að stuðningsmennirnir séu ekki síður þátttakendur í Skólahreysti.

„Við reynum að skapa mikla stemningu innan skólans fyrir keppninni. Krakkarnir sem eru í liðinu sýna listir sínar í skólanum og svo fjölmennum við í rútu á hverja keppni og styðjum okkar fólk.

Það hafa verið hátt í tvöhundruð stuðningsmenn hjá okkur, krakkarnir klæða sig gjarnan upp og hafa mjög gaman af þessu,“ segir Jón að lokum.

birta@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is