Hvað er Skólahreysti?
Skólahreysti er liðakeppni milli grunnskóla landsins og á heimasíðu keppninnar, skolahreysti.is, má fá margvíslegar upplýsingar um keppnina, sögu hennar og framkvæmd.
Hvert lið samanstendur af tveimur strákum og tveimur stelpum sem öll þurfa að vera nemendur í 9. og/eða 10. bekk síns skóla. Keppt er í eftirfarandi keppnisgreinum:
• Upphífingum (strákar)
• Armbeygjum (stelpur)
• Dýfum (strákar)
• Hreystigreip (stelpur)
• Hraðaþraut (strákar og stelpur)
Keppendur skipta á milli sín keppnisgreinum.
Fyrir fyrsta sæti í upphífingum, armbeygjum, dýfum og hreystigreip eru gefin 20 stig. Annað sæti gefur 19 stig; þriðja sæti gefur 18 stig og svo koll af kolli. Besti tíminn í hraðaþrautinni færir viðkomandi liði 40 stig, meðan annað sæti gefur 38 stig, þriðja sæti 36 stig og svo framvegis. Sá skóli sem hlýtur flest samanlögð stig stendur uppi sem sigurvegari í Skólahreysti.
Þar sem mikill fjöldi skóla tekur þátt í keppninni er nauðsynlegt að viðhafa undankeppnir til að ákvarða hvaða skólar keppi í úrslitakeppninni sjálfri í lok keppnistímabilsins. Undankeppnirnar eru 10 talsins og eru þær svæðisbundnar, þ.e. skólar frá sama landsvæði keppa innbyrðis sín á milli. Einn skóli frá hverju landsvæði öðlast þátttökurétt í úrslitunum, en tveir árangurshæstu, en ekki endilega stigahæstu, skólarnir af þeim sem enda í 2. sæti í sínum riðli fá svokölluð uppbótarsæti í úrslitunum. Heildarfjöldi skóla í úrslitum Skólahreysti er því 12.
Skólahreysti er viðurkennd af og nýtur opinbers stuðnings menntamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, norrænu ráðherranefndarinnar, Íþrótta og ólympíusambands Íslands og sveitarfélaga.







