„Krafturinn í krökkunum er rosalegur“

stækka

Unspecified

Mjólkursamsalan hefur styrkt Skólahreysti frá upphafi. Vilja leggja sitt af mörkum til að auka hreyfingu og bæta mataræði ungmenna.

Við erum mjög stolt af að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni og gaman að hafa fengið að sjá hvað keppnin hefur vaxið gríðarlega á þessum sjö árum,“ segir Guðný Steinsdóttir markaðsstjóri Mjólkursamsölunnar en MS hefur verið aðalstyrktaraðili Skólahreysti frá upphafi.

„Skólahreysti er langstærsta styrktarverkefnið okkar og hefur allt frá fyrstu keppni verið gríðarlega mikilvægur viðburður fyrir okkur. Þetta er hreint frábær keppni, ótrúlega gott framtak og óviðjafnanlegt að sjá keppnisskapið í þessu unga fólki, hvort sem er á þrautavellinum eða uppi í stúku þar sem stuðningsliðin draga ekkert af sér,“ bætir Guðný við.

Auk þess að standa straum af kostnaðinum við keppnina veitir MS vegleg verðlaun til sigurvegaranna. Skólafélög þriggja efstu skólanna fá peningaverðlaun og meðlimir sigurliðanna matarkörfur með mjólkurvörum auk íþróttabúnaðar eins og t.d. reiðhjóla.

Ótrúleg stemning

Guðný kveðst vera dugleg að mæta á Skólahreystikeppnina. „Það er alltaf mikil upplifun að fylgjast með og maður gerir sér eiginlega ekki grein fyrir hvað stemningin er ótrúlega mikil fyrr en maður mætir á staðinn. Krafturinn í krökkunum er rosalegur og bæði keppendur og stuðningsmenn taka hlutverk sitt mjög alvarlega. Á lokasprettinum er þakið oft við það að rifna af íþróttahúsinu.“

Með stuðningi MS hefur tekist að gera umgjörð keppninnar jafnveglega og raun ber vitni. „Við tókum í upphafi þá ákvörðun að spara engu til, að Skólahreysti yrði að glæsilegri keppni. Við vildum þannig líka leggja okkar af mörkum til að auðvelda ungmennum þátttöku, en skólarnir þurfa ekki að greiða nein keppnisgjöld,“ segir Guðný.

„Markmið Skólahreysti fer vel saman við markmið MS, það er: að stuðla að heilbrigðari lífsháttum. Rannsóknir hafa sýnt að neysla barna og unglinga hér á landi á mjólkurvörum hefur dregist saman og að sama skapi er neysla á sykruðum gos- og svaladrykkjum svo mikil að 15 ára unglingar drekka af þeim að jafnaði 4 lítra á viku. Með því að styðja við Skólahreysti vonumst við til að vekja athygli á hollum mjólkurvörum, s.s. skyri, jógúrt og ostum,“ segir Guðný. „Við búum lengi að því sem við temjum okkur á unga aldri, og við vitum að kalk og D-vítamín ásamt hollri hreyfingu leggur grunninn að sterkum beinum, en mjólkurvörur eru einmitt mjög góðir kalkgjafar.“

Guðný bendir einnig á að offita og hreyfingarleysi virðist vera vaxandi vandamál hérlendis. „Aukning hefur verið á ofþyngd og offitu hjá börnum og unglingum á undanförnum árum, og skiptir miklu máli að snúa þeirri þróun við. Sérstaðan sem Skólahreysti hefur umfram margar aðrar íþróttir er að keppnin höfðar mjög sterk til þessa aldurshóps og án vafa mikill áhrifavaldur að þar geta börnin fundið jákvæðar fyrirmyndir í jafnöldrum sínum í keppnisliðunum.“

Guðný bætir við að margar íslenskar mjólkurvörur geti flokkast sem hreinræktað íþróttafæði. „Skyrið er t.d. bæði mjög próteinríkt og alveg fitulaust. Við höfum einnig þróað mjög góða vöru gagngert fyrir íþróttafólk eins og t.d. Hleðslu sem er drykkur ríkur af mysupróteinum og orku. Mysuprótín þykja einmitt mjög góð til að byggja vöðvavefi.“ ai@mbl.is

Vítamín og prótínbomba

Margar mjólkurvörur eiga vel heima í daglegu mataræði íþróttafólks. Skyrið er gott dæmi um einstaka náttúrulega afurð sem er auðug af prótíni en nánast fitulaus. Hreint skyr er mjög hitaeiningasnauð fæða en inniheldur mikið af næringarefnum eins og kalki, B-vítamíni og öðrum vítamínum og steinefnum. Svo er skyrið auðvitað bráðgott, hvað þá ef blandað er út í ávöxtum eða öðru hollu góðgæti: „Skyr.is með jarðarberjum fékk t.d. á dögunum gullverðlaun í sínum flokki á norrænni mjólkurvörusýningu, svo það er ljóst að við eigum þar gæðavöru sem gott er að bragða á.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is