Langaði miklu meira í klappliðið

stækka

mbl.is

Sigurður Kristinsson hugleiddi lengi vel að reyna að komast í keppnislið skólans síns, Lindaskóla. „En ég vissi að við værum með mjög gott lið og mig langaði í raun miklu meira til að vera í klappliðinu. Það er svo rosalega gaman þegar maður tekur sig svona til og nær með hópnum að skapa mikla stemningu í kringum keppnina. Í raun var þetta alveg svakalega magnaður dagur fyrir okkur stuðningsmennina.“

Stuðningslið Lindaskóla vakti verðskuldaða athygli í keppninni fyrir ári. Þeir sem fylgst hafa með útsendingunni hafa eflaust tekið eftir bláleitum furðufyrirbærum sem virtust hafa villst úr tökum á kvikmyndinni Avatar. „Lindaskóli hefur alltaf verið með frekar öflugt stuðningslið, og við félagarnir fórum að velta því fyrir okkur einn daginn eftir skóla hvernig ætti að hvetja liðið áfram í ár. Þá kviknaði sú hugmynd að fá að láni útlitið frá Avatar enda er blár einkennislitur Lindaskóla. Í framhaldinu lögðumst við Bjarki Rafn góðvinur minn í frekari pælingar og teikningar og smíðuðum á endanum pall í formi dreka.“

Lætin byrjuðu strax þegar keppnisliðin hófu göngu sína inn í Laugardalshöllina. „Hefðin er sú að keppnisliðin ganga inn á völlinn með stuðningsliðum sínum. Það hreinlega trylltist allt þegar við stigum fram, með trommusveit, og átta blálitaðar verur sem báru á herðum sér drekann og forsprakka klappliðsins. Við notuðum þurrís svo það kom reykur út úr munni drekans og sprengdum tvær risavaxnar innisprengjur sem þyrluðu pappaskrauti yfir hópinn,“ segir Sigurður. „Við hvöttum liðið okkar svo áfram með öllum tiltækum ráðum og meira að segja laumuðum okkur inn í sjónvarpsútsendingar ef því var að skipta.“

Erfitt er að segja til um með vissu hvort stuðningurinn gerði útslagið um sigur Lindaskóla í keppninni. „Þegar þú ert kominn á sjötugustu armbeygjuna þá eflaust hjálpar það til að hafa heilan sal af stuðningsmönnum og skoppandi blámenn sem hvetja þig áfram,“ segir Sigurður. „En umfram allt var þetta uppistand skemmtilegt fyrir okkur sem stóðum fyrir húllumhæinu, og fyrir áhorfendur.“ ai@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is