Skólahreysti á hvíta tjaldið

Margrét Örnólfsdóttir stækka

Margrét Örnólfsdóttir Kristinn Ingvarsson

Nú er í bígerð kvikmynd þar sem Skólahreysti kemur mikið við sögu. Margrét Örnólfsdóttir er handritshöfundur myndarinnar.

Kvikmyndin ber vinnuheitið Steinn eftir aðalpersónunni, en það er drengur sem lendir út af sporinu og er sendur til Vestamannaeyja í þeirri von að það auveldi honum að fóta sig í lífinu. Það endar svo þannig að hann lendir í Skólahreysti-liði skólans í Vestmannaeyjum og þá er að duga eða drepast,“ útskýrir Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur.

„Við fengum svo þær upplýsingar frá umsjónarmönnum Skólahreysti eftir að við byrjuðum að vinna að myndinni að það sé talsvert um það að krakkar sem hafa verið í einhverskonar vandræðum hafi fundið sér stað í Skólahreysti. Svo okkar nálgun á þetta er ekki alveg út í bláin.

SagaFilm hefur framleitt sjónvarpsþættina um Skólahreysti í nokkur ár og það er mikill áhugi á keppninni þar á bæ sem og annars staðar. Því langaði þau hjá SagaFilm til að gera eitthvað meira úr þessu. Ég var svo fengin til að skrifa söguna.“

Margrét segist ekki hafa verið neinn sérstakur áhugamaður um Skólahreysti þegar hún var beðin um að taka að sér handritaskrifin þó hún hafi vissulega vitað hvað það var.

„Mér finnst Skólahreysti mjög flott leið til að búa til góða stemningu meðal krakkanna. Ég held að þetta geri bæði mikið fyrir krakkana og skólana auk bæjarfélaga hvers skóla,“ segir Margrét. Hún upplýsir að verið sé að leggja lokahönd á handritið

„Það eru allir voða spenntir að byrja á þessu, þó við vitum ekki alveg hvenær það gerist. Vonandi geta tökur hafist á þessu ári,“ segir Margrét að lokum. birta@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is