Þetta var ótrúlega gaman

Helga Margrét „Ég passa ekki lengur í bolinn sem ég keppti í en mér dettur ... stækka

Helga Margrét „Ég passa ekki lengur í bolinn sem ég keppti í en mér dettur ekki í hug að henda honum." mbl.is/Ómar Óskarsson

Ég tók þátt þegar ég var í tíunda bekk, fyrir fjórum árum, fyrir hönd Grunnskóla Húnaþings vestra,“ rifjar Helga Margrét upp.

„Þá var undankeppnin í Borgarnesi og þetta var allt saman gríðarlega skemmtilegt.“

Helga Margrét segir undirbúninginn ekki hafa verið mikinn, skólinn sé fámennur, en einhver undankeppni hafi þó verið haldin í skólanum.

„Þeir bestu voru einfaldlega sendir, en ég man að í hraðabrautinni komst ég ekki upp kaðalinn. Það var þá bara mitt vandamál að vinna í því fyrir keppnina,“ segir Helga Margrét hlæjandi.

Já, fámennur var skólinn, hún var í 16 manna bekk sem var sá eini í árganginum.

„En það var mikil stemming fyrir keppninni í skólanum og nemendurnir fjölmenntu á keppnina í rútu. Ég held að það sé svoleiðis í flestum skólum að langflestir taki þátt. Í fyrstu þykjast kannski flestir ekki hafa áhuga á þessu en svo smitar stemningin útfrá sér og flestir taka þátt.“

Hraðabrautin átti vel við

Spurð um árangur Grunnskóla Húnaþings vestra í keppninni svarar Helga Margrét;

„Okkur gekk mjög vel, við urðum í öðru sæti í Vesturlands-keppninni. Við vorum með besta tímann í hraðabrautinni en þar klikkaði eitt dekk þannig að við fengum refsingu fyrir það. Það var svolítið sárt,“ rifjar hún upp.

„En hraðabrautin átti mjög vel við mig og mér fannst þetta ótrúlega gaman.“

Annað sæti í undankeppni var ekki nóg til að öðlast þátttökurétt í úrslitum, en Helga rifjar upp að þau hafi fengið ostakörfu að launum og að það hafi verið kærkomið.

Hollt mataræði mikilvægt

Helga segist ekki fylgjast grannt með keppninni í dag.

„Ja og þó, þegar ég sé þetta fylgist ég með tímanum sem krakkarnir eru að ná og ber saman við minn eigin árangur í keppninni,“ segir hún.

„Mér finnst þetta ótrúlega flott framtak. Ég veit að í mínum skóla er núna boðið uppá valáfanga sem heitir Skólahreysti þar sem nemendurnir geta æft sig fyrir þetta allan veturinn og það er eins í fleiri skólum.“

Aðspurð um ráðleggingar til keppenda í Skólahreysti svarar Helga Margrét;

„Það er auðvitað best að æfa sig vel og ég myndi mæla með því að æfa nokkur saman. Það er ákveðin hvatning í því. Svo vita allir að hollt mataræði er mikilvægt. Það er ekki nóg að vita það, það verður líka að fylgja því eftir. Svo verða krakkar að passa sig að sofa nóg, og ekki vera að hanga á Facebook fram á nótt,“ segir Helga hlæjandi.

Og hún segist hugsa til Skólahreysti með hlýju.

„Ég passa ekki lengur í bolinn sem ég keppti í en mér dettur ekki í hug að henda honum. Ég á svo margar góðar minningar frá keppninni.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is