Íþróttir
|
Skólahreysti
| Morgunblaðið
| 5.3.2011
| 5:30
| Uppfært
6:50
Tvö ný Íslandsmet sett í Skólahreysti í vikunni
Skólahreysti MS í ár fer af stað með látum, en keppni hófst í vikunni. Strax á fyrstu dögum keppninnar féllu tvö Íslandsmet.
Valgarð Reynaldsson úr Lindaskóla setti met í dýfum þegar hann tók 83 slíkar í keppninni síðastliðinn fimmtudag. Fyrra met átti hann reyndar sjálfur og það hljóðaði upp á 81 dýfu og var slegið í keppninni í fyrra.
Lið Myllubakkaskóla og Lækjarskóla virðast einnig hafa unnið heimavinnuna sína því keppendur úr þeim skólum settu báðir Íslandsmet í armbeygjum. Gamla metið var 95 armbeygjur sem María Ása Ásþórsdóttir úr Heiðarskóla í Reykjanesbæ átti.
Fyrst var það Jóhanna Júlía Júlíusdóttir úr Myllubakkaskóla sem tók 98 armbeygjur síðastliðinn fimmtudag og átti hún því nýtt Íslandsmet í nokkrar mínútur eða allt þar til Dóra Sóldís Ásmundardóttir úr Lækjarskóla mætti til leiks og tók 100 armbeygjur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







