Stuðningsmenn í góðum gír á Egilsstöðum

Flott stuðningsmannalið Stefáns Braga Birgissonar úr sigurliði Egilsstaðaskóla. Stefán sigraði bæði upphífingar og dýfur. stækka

Flott stuðningsmannalið Stefáns Braga Birgissonar úr sigurliði Egilsstaðaskóla. Stefán sigraði bæði upphífingar og dýfur. mbl.is

Þakið ætlaði bókstaflega af íþróttahöll Egilsstaða í gær er skólar af Austurlandi kepptu sín á milli Skólahreysti. Að lokum fór svo að Egilsstaða skóli sigraði með 64 stigum, Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar varð í öðru sæti með 44 stig og Grunnskóli Breiðdalshrepps hlaut þriðja sæti með 43,5 stig.

Húsið var stappfullt af skemmtilegum og öflugum stuðningsmönnum skólanna og stemmningin var frábær. Þáttur stuðningsmanna er farinn að vera stór partur af keppninni, bæði að styðja sitt lið sem er ómetanlegt þegar hörð og spennandi keppni er en einnig eru þeir í flottum búningum, málaðir og með skemmtilega framkomu.

Keppnin var gríðarlega spennandi og Austfirskir krakkar eru í flottu formi og sýndu alla sína bestu takta í keppninni í gær.

Egilsstaða skóli sigraði með 64 stigum, Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar varð í öðru sæti með 44 stig og Grunnskóli Breiðdalshrepps hlaut þriðja sæti með 43,5 stig. Fjórða sætið hreppti lið Grunnskóla Djúpavogs með 42 stig. Það sést á stigum skólanna úr öðru, þriðja og fjórða sæti hve spennandi keppnin var því á öllum þessum sætum munar aðeins hálfu stigi.

Egilsstaðaskóli er því búinn að vinna sér sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni Skólahreysti MS 28. apríl nk. sem verður sýnt í beinni útsendingu í Sjónvarpinu frá Laugardalshöll. Það eru tíu skólar úr tíu riðlum sem fara í úrslitakeppnina en einnig komast inn tvö uppbótarlið. Það eru þau lið úr öðru sæti sem bestum árangri náðu í undankeppnunum.

Þáttur um Skólahreysti MS á Egilsstöðum verður sýndur á RÚV þriðjudagskvöldið 29. mars. Næstu tveir riðlar í Skólahreysti verða á Akureyri 25.mars.

Alltaf hægt að fylgjast með öllu í Skólahreysti á heimasíðunni Skolahreysti.is og á Facebook. .

Keppendur kátir að lokinni keppni á Egilsstöðum.

Keppendur kátir að lokinni keppni á Egilsstöðum. mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is