Íþróttir
|
Skólahreysti
| Morgunblaðið
| 26.3.2011
| 5:30
| Uppfært
5:50
Skólahraustir Norðlendingar
Rífandi stemning var í íþróttahöllinni á Akureyri í gær, þegar börn af Norðurlandi reyndu með sér í skólahreysti.
Keppni var æsispennandi og margir sýndu ótrúleg tilþrif; fréttnæmast var að Snjólaug Heimisdóttir úr Giljaskóla setti Íslandsmet í armbeygjum, náði hvorki meira né minna en 106, við mikinn fögnuð viðstaddra.
Þessi fimi piltur er um það bil að ljúka síðustu grein með því að klifra sex metra upp eftir kaðli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







