Ljóst hverjir keppa til úrslita

Stuðningsmenn í miklum ham í Austurberginu. stækka

Stuðningsmenn í miklum ham í Austurberginu. mbl.is/Brjánn Baldursson

Fjórir síðustu riðlar undankeppni Skólahreysti MS 2011 fóru fram í Íþróttahúsinu í Austurbergi í Breiðholti í gær. Þrjú þúsund litríkir og sterkir stuðningsmenn mættu í íþróttahúsið og studdu kröftuglega við sinn skóla. Þar var setið í hverju einasta sæti og öll pláss nýtt sem var að finna í húsinu.

Þarna voru til keppni komnir gríðarlega sterkir og hraustir skólar og var spennustigið komið í hámark þegar úrslit voru ljós. Í fyrsta riðli tókust á skólar frá Vesturlandi, í öðrum riðli skólar frá Vestfjörðum. Skólar úr Breiðholti, Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti voru í þriðja riðli og svo Austurbær og Vesturbær í þeim fjórða.

Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði

Í Vesturlandsriðli var keppnin jöfn fram á seinustu sekúndu. Skólar voru svo jafnir að tveir skólar enduðu með sömu stigatölu. Það voru Grunnskóli Húnaþings vestra og Grunnskóli Borgarfjarðar. Þegar svona gerist tekur við í stigakerfi árangurstenging og þar náði Grunnskóli   Húnaþings vestra sigursætinu. Því varð Grunnskóli Borgarfjarðar í öðru sæti og aðeins einu stigi á eftir þeim var Grunnskólinn í Borgarnesi.

Grunnskólinn á Ísafirði í fyrsta sæti

Í Vestfjarðarriðli voru það keppendur í Grunnskólanum á Ísafirði sem  nokkuð öruggu sigursæti. Í öðru sæti varð Grunnskóli Bolungarvíkur og í þriðja sæti varð Tálknafjarðarskóli.

Árbæjarskóli með besta árangurinn

Í þriðja riðli var það lið Árbæjarskóla sem fór með sigur af hólmi eftir mikla baráttu við lið Ölduselsskóla og Hólabrekkuskóla. Ölduselsskóli var búinn að leiða keppnina fram að hraðaþraut. Þar náði Árbæjarskóli besta tímanum í hraðaþraut og náði fyrsta sæti, Breiðholtsskóli varð í öðru sæti og Hólabrekkuskóli lenti í 3.sæti.

Sigurvegarinn Valhúsaskóli

Í baráttu milli skóla úr Vesturbæ og Austurbæ var það Valhúsaskóli sem stóð uppi sem sigurvegari eftir mikla baráttu við Háteigsskóla og Hagaskóla. Háteigsskóli varð í öðru sæti og Hagaskóli í því þriðja. Má segja að bæjarhlutar hafi skipt sætunum bróðurlega á milli sín í þessum riðli.

Lágafellsskóli og Heiðarskóli í lokakeppnina

Það er því ljóst núna eftir alla tíu undanriðla að eftirtaldir skólar fara í úrslit 28. apríl næstkomandi í beinni útsendingu úr Laugardalshöll: Hvolsskóli, Lindaskóli,Holtaskóli í Reykjanesbæ, Egilsstaðaskóli, Dalvíkurskóli, Brekkuskóli á Akureyri, Grunnskólinn á Ísafirði, Árbæjarskóli og Valhúsaskóli.

Tveir uppbótarskólar komast inn í úrslit, það eru þeir skólar sem höfðu bestan árangur í 2.sæti. og eru það Lágafellsskóli í Mosfellsbæ og Heiðarskóli í Reykjanesbæ.

Það sem einkenndi skólana í Austurbergi í gær voru frábærir tímar í hraðaþraut og bættur árangur frá síðasta ári. Skólar hafa greinilega lagt mikið í æfingar fyrir keppnirnar og einnig stóðu stuðningsmenn frábærlega með sterkan og góðan stuðning við keppendur sem ekki er síður mikilvægur í keppninni.

Þættir af öllum riðlum eru sýndir á þriðjudagskvöldum á RÚV kl. 20:10 og endursýndir á föstudögum og laugardögum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is