Skólahreysti í útrás til Finnlands

Tekið á í Skólahreysti stækka

Tekið á í Skólahreysti mbl.is/Ómar

Sigurliðinu í Skólahreysti 2011 verður boðið á Your Move-íþrótta-mótið í Finnlandi í lok maí og munu íslensku unglingarnir keppa þar við lið 14 finnskra skóla.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að fulltrúar finnska æskulýðssambandsins Unga Finnland (Nuori Suomi) og finnska sjónvarpið koma á úrslitakeppni Skólahreysti 28. apríl nk. til að kynna sér keppnina og taka upp efni. Það má því segja að Skólahreystin sé komin í útrás.

„Þetta er ofsalega spennandi,“ sagði Andrés Guðmundsson sem stofnaði Skólahreysti ásamt konu sinni Láru Berglindi Helgadóttur árið 2005. „Þarna er okkur boðið að halda kynningarmót í Skólahreysti. Við förum út með gáminn okkar og setjum upp hreystibraut utanhúss. Síðasta daginn færum við brautina inn í íþróttahöll og þar keppa 14 finnskir skólar til úrslita.“ Lið skólans sem sigrar hér í Skólahreysti 2011 keppir þar við finnsku skólana. „Ætlunin er svo að byrja með skólakeppnina Skólahreysti í Finnlandi í haust. Við smíðum fyrstu brautina og sendum þeim í sumar. Svo vonum við að þetta fari allt rétta leið.“

Andrés Guðmundsson og Lára Berglind Helgadóttir ásamt börnum sínum.

Andrés Guðmundsson og Lára Berglind Helgadóttir ásamt börnum sínum. mbl.is/RAX

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag


finnur.is