Íþróttir
|
Skólahreysti
| Morgunblaðið
| 30.4.2011
| 5:30
Næst er það keppni við skóla í Finnlandi
„Þetta var ótrúlega gaman,“ segir Birkir Freyr Birkisson, sem var í liði Holtaskóla í Reykjanesbæ sem sigraði í Skólahreysti í ár, en úrslitakeppnin fór fram í Laugardalshöll í fyrrakvöld. Sigurvegararnir keppa næst við lið 14 finnskra skóla og fara til Finnlands í lok maí.
Móttaka var í sal Holtaskóla í gærmorgun þar sem nemendur og starfsfólk hylltu meistarana. „Þetta var mjög gaman,“ segir Birkir Freyr. „Það var rosalega flott að sjá alla yngri krakkana með blöð sem á stóð Áfram Holtaskóli.“ Hann bætir við að nemendur hafi stutt vel við bakið á liðinu í keppninni og um 70 manns hafi farið með þeim í Höllina í fyrrakvöld.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Jóhann Geirdal, skólastjóri Holtaskóla, að sigurinn hafi mikla þýðingu fyrir andann í skólanum. Holtaskóli hafi það að leiðarljósi að skólinn sé samfélag sem einkennist af virðingu, ábyrgð, virkni og ánægju. „Þetta þjappar hópnum saman sem einni heild,“ segir hann og leggur áherslu á að árangurinn virki hvetjandi á nemendur á öllum sviðum. „Þetta eru frábærir krakkar, hafa lagt mikið á sig og unnið vel.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







