Stelpurnar unnu strandblakið í kuldanum

Berglind Jónsdóttir og Elísabet Einarsdóttir ásamt þjálfara sínum Einari Sigurðssyni.
Berglind Jónsdóttir og Elísabet Einarsdóttir ásamt þjálfara sínum Einari Sigurðssyni. Ljósmynd/ÍSÍ

Keppni í strandblaki á Smáþjóðaleikunum hófst í dag á glænýju og stórglæsilegu strandblakssvæði í Laugardalnum.

Þetta er í fyrsta skipti sem landsleikir í strandblaki fara fram hér á landi og því ástæða til að gleðjast þó veðurguðirnir hafi ekki verið á þeim buxunum. Þónokkur vindur var og mjög kalt og á tímabili féllu nokkur snjókorn.

Í karlakeppninni tóku Einar Sigurðsson og Orri Þór Jónsson á móti Andorra og sáu þeir lítið til sólar í þeim leik. Andorramenn, sem unnu brons á síðustu leikum,  léku vel og nýttu vindinn rétt og varð fljótt ljóst að íslenska liðið átti við ofurefli að etja.  Svo fór að þeir töpuðu 2:0, fyrri hrinunni 21:6 og þeirri síðari 21:5.

Þær Berglind Jónsdóttir og Elísabet Einarsdóttir, sem skipa kvennalið Íslands, léku hinsvegar vel í dag og sigruðu Liechtenstein í æsispennandi leik 2:1, þar sem oddahrinunni lauk með 15:13 sigri eftir að staðan hafði verið jöfn 13:13. 

Í fyrri hrinunni sem vannst örugglega 21:13, gekk allt upp. Móttaka og blokk var góð og sóknirnar einnig og yfirburðir þónokkrir. Í annari hrinu lentu þær hinsvegar undir og gerðu mun fleiri mistök en í fyrri hrinunni.  Þó nokkrar góðar skorpur hafi komið inn á milli þá dugði það ekki til og tapaðist hrinan 21:15.  Oddahrinan var gríðarlega spennandi og skiptust liðin á að hafa forystuna. Í stöðunni 13-13 missti Leichtenstein fleig út af vellinum og íslensku stelpurnar nýttu tækifærið og kláruðu þetta 15:13.

Á morgun leika bæði íslensku liðin gegn Kýpur. Karlarnir klukkan 16:30 og konurnar klukkan 17:30 en þar má búast við hörku spennandi leik.

Einar Sigurðsson og Orri Þór Jónsson ásamt þjálfara sínum Karli …
Einar Sigurðsson og Orri Þór Jónsson ásamt þjálfara sínum Karli Sigurðssyni. Ljósmynd/ÍSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert