Líflegt vetrarstarf framundan hjá SVAK

mbl.is Karl Lúðvíksson veidi@mbl.is

Stangaveiðifélag Akureyrar heldur úti líflegu félagsstarfi í vetur fyrir félaga og aðra áhugamenn um stangveiði og okkur var að berast dagskráin sem er framundan í vetur.

Það er gaman að sjá hvað félagsstarfið hjá SVAK hefur verið líflegt og við hvetjum þá sem eiga heimangengt að kíkja á kvöldin, sem og þá áhugamenn um stangveiði sem heimsækja Akureyri að kíkja við og fá sér kaffisopa með norðanmönnum.  Dagskrá vetrarins er sem segir:

11.mars Hnýtingakvöld

18.mars "Óðalsatferli og stofnvistfræði ungra laxfiska" – Dr. Stefán Óli Steingrímsson.

25.mars Hnýtingarkvöld

1.apríl Hópferð í veiði- veiðarfæri fara eftir veðurfari og snjóalögum, í samvinnu við Veiðivörur.is

8.apríl Árkynning – Laxá í Aðaldal - Hraun, Engey og Syðrafjall (Hermann Bárðarson)

15.apríl Hnýtingarkvöld

22.apríl Árkynning Fjarðará í Hvalvatnsfirði

29.apríl Fnjóská

Maímánuður: 10 ára afmæli SVAK-vorhátíð, kastnámskeið,dagsetningar og fyrirkomulag auglýst síðar.

Vetrarstarfið fer fram við Veiðivörur.is í Amaróhúsinu á hverju mánudagskvöldi og hefst kl 20 nema annað sé tekið fram.  Athugið að dagskráin gæti breyst.  Vetrarstarfið verður auglýst hverju sinni með pósti til félagsmanna og á heimasíðu og FB-síðu SVAK.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
mbl sjónvarp
Kastvinkill og kraftbeiting

Kastvinkill og kraftbeiting myndskeið

19.7. Kastvinkill og kraftbeiting eru þau lykilatriði flugukasta sem Börkur Smári Kristinsson fjallar um í þessum þætti Flugukasta. Meira »
Fleiri flugukastsþættir