Elliðavatnskynning í kvöld hjá SVFR - Frestað
Karl Lúðvíksson veidi@mbl.isÍ kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 19.30 verður Elliðavatnskynning í húsakynnum SVFR í Elliðaárdal, það er að segja ef veður leyfir.
Nú er Elliðavatn komið í Veiðikortið og ekki seinna vænna að kynna sér aðstæður en vatnið hefur lengi verið talið einn af bestu skólum þeirra sem vilja verða góðir vatnaveiðimenn. Það verður Geir Thorsteinsson sem leiðir fólk í allan sannleik um Elliðavatn. Hvaða flugur er best að nota, hvar er best að veiða og fleira. Geir hefur tekið saman rafrænan bækling og ef menn vilja undirbúa sig er þeim bent á þessa slóð http://veidikortid.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=1657.
Ingimundur frá Veiðikortinu verður á staðnum og veitir þeim sem mæta afslátt af Veiðikortinu. Það má reikna með fjölmenni við Elliðavatn í sumar en veiðimenn hafa beðið lengi eftir að vatnið færi undir veiðikortið enda náttúran og kyrrðin svona stutt frá bæjardyrunum einstaklega róandi eftir vinnudag. Nokkrir venja komur sínar að vatninu eftir amstur dagsins og menn eru þá með græjurnar klárar í bílnum, skjótast eftir vinnu og taka nokkur köst.
Uppfært 12:33: Vorum að fá þær fregnir að kvöldinu verður frestað vegna veðurs






