Hnýtingarkvöld hjá SVFR 7. mars

mbl.is Karl Lúðvíksson veidi@mbl.is
Fræðslunefnd félagsins er farin á fullt og hnýtingarkvöldin hafin.  Kvöldin hafa notið mikilla vinsælda og leiðbeinandi er sem fyrr hinn magnaði Sigurður Pálsson. Þessir skemmtilegu viðburðir standa félagsmönnum SVFR opnir og er velkomið að taka með sér gesti.  Hnýtt verður í húsakynnum SVFR að Rafstöðvarvegi í Elliðaárdal, og hefjast kvöldin stundvíslega  klukkan 19.30.  Kvöldin verða sem hér segir eftirtalda fimmtudaga: 7.3., 21.3., 4.4., 18.4., 2.5. og 16.5.  Allir áhugasamir stangaveiðimenn eru hvattir til þess að mæta. Hér er kjörinn vettvangur fyrir vana sem óvana að koma saman, hnýta flugur og spjalla. Allt efni er á staðnum og einnig þau tæki sem þarf til hnýtinganna.
 
 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
mbl sjónvarp
Fluguköst: Slaki og tímasetning

Fluguköst: Slaki og tímasetning myndskeið

19.7. Börkur Smári Kristinsson fer í þessum þætti af Fluguköstum yfir fyrstu tvö lykilatriðin af fimm sem bandaríski fluguveiðimaðurinn Bill Gammel setti fram sem undirstöður flugukasta. Meira »
Fleiri flugukastsþættir