Góður morgun í Elliðaánum

Góð veiði er í Elliðaánum þessa dagana enda er mikið af laxi í ánni og laxinn er kominn upp um alla á.
Í skeyti frá Ólafi E. Jóhannssyni Formanni Árnefndar var morguninn í morgun frábær en 17 löxum var landað og nokkrir í viðbót sem sluppu.

Hirtu veiðimenn 8 þessara laxa sem þýðir að allar stangir náðu kvótanum. 9 löxum var sleppt. 6 fiskar fengust á maðk en 11 á flugu, flestir á smáa svarta Frances túbu. Þannig fengust í morgun laxar m.a. í Hundasteinum, Hrauni, Símastreng, Neðri Kistu og í Höfuðhyl sem allir eru í efri hluta Elliðaánna. Óvenju vænir laxar eru að veiðast í Elliðaánum í sumar. Þannig var stærsti laxinn í morgun 81 cm. langur, en honum var sleppt. Sá stærsti sem náðst hefur í sumar var 91 cm. og 6,9 kg segir Ólafur.  Ennþá eru laus leyfi í haustveiðina og leyfin má nálgast á www.svfr.is

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert