Hefur veitt í Laxá í 60 sumur

Bryndís Líf veiðikona með föður sínum Bjarna Þórði Bjarnasyni með …
Bryndís Líf veiðikona með föður sínum Bjarna Þórði Bjarnasyni með 105 sentímetra nýgenginn hæng.

Í ár fagnar Laxárfélagið í Laxá í Aðaldal 75 ára afmæli sínu. Síðdegis í gær höfðu verið veiddir 75.098 laxar frá því að veiðin hófst sumarið 1941. Orri Vigfússon, formaður félagsins undanfarin 30 ár, segir veiðina hafa gengið vel í Laxá að undanförnu.

Laxárfélagið er samtök áhugamanna um stangveiði og náttúrutöfra Laxár í Aðaldal. Félagið skiptist í deildir með heimilisfesti á Akureyri, Húsavík og í Reykjavík og rekur veiðiheimilið Vökuholt í landi Laxamýrar. Í starfi sínu segir Orri að Laxárfélagið vilji stuðla að alhliða laxavernd í villtri náttúru, beita sér fyrir hófsemi og háttvísi við veiðar og vinna að öðrum áhugamálum

fluguveiðimanna.

51. veiðiár Orra í Laxá

„Þetta er 51. árið mitt sem ég veiði í Laxá í Aðaldal,“ sagði Orri í samtali við Morgunblaðið, „og ánægjan af því að veiða í þessari stórkostlegu á er alltaf hin sama.

Það voru nokkrir læknar á Landspítalanum sem stofnuðu Laxárfélagið árið 1940. Það eru ennþá nokkrir læknar í félaginu. Það hefur verið talsvert mikið um það að félagasæti í Laxárfélaginu og þar með veiðirétturinn hafi gengið í erfðir, þannig að synir, dætur og tengdabörn hafa tekið við keflinu. Það er óhemjuskemmtilegt að vera í þessum félagsskap. Á þessum 75 árum hafa aðeins þrír menn verið formenn félagsins. Fyrsti formaðurinn hét Kristinn Stefánsson, frá Grund í Svarfaðardal. Annar í röðinni var Sigurður Samúelsson prófessor. Og ég er þriðji formaðurinn og hef verið í formennsku undanfarin 30 ár,“ segir Orri.

Öllum laxi sem veiddur er í Laxá í Aðaldal er sleppt og hefur sá háttur verið hafður á síðan 2003.

„Við byrjuðum að sleppa öllum laxi sem veiddist í ágústmánuði, 1995. Svo fórum við að sleppa öllum stórum laxi, einkum stórum hrygnum. Við höfum sleppt öllum laxi sem veiðst hefur síðan árið 2003,“ sagði Orri.

Hann var spurður hvort ekki hefði verið erfitt að fá laxveiðimennina til þess að samþykkja sleppingar:

„Jú, í ákveðnum tilfellum var það mjög erfitt. Meira að segja svo erfitt, að nokkrir hættu bara að veiða í Laxá. Menn vilja borða fiskinn sem þeir veiða og það jafnast náttúrlega ekkert á við villtan lax,“ segir Orri. Hann segir að þeir í Laxárfélaginu hafi verið að reikna út hrognamagnið í ánni. Svo virðist sem laxveiðimenn í Laxá séu að skilja eftir jafnmikið hrognamagn í ánni, með því að sleppa öllum laxinum og var í ánni í gamla daga, þegar mokveiði var alltaf í Laxá. „Ef þú veiðir 1.000 laxa og drepur alla, þá eru líklega um 650 laxar sem hrygna miðað við 60% veiðihlutfall. Það jafngildir veiðiári upp á 390 laxa þar sem öllu er sleppt. En það ár hrygna líka 650 laxar. Þannig að þegar búið er að veiða 390 laxa, má gera ráð fyrir að jafn mikið sé eftir í henni eins og var þegar 1.000 laxar voru drepnir,“ útskýrir Orri.

Axel byrjaði að veiða í Laxá 10 ára gamall

Axel Gíslason, fyrrverandi for-stjóri VÍS, hefur veitt í Laxá í Að-aldal í sextíu sumur í röð. Hann veiddi sinn fyrsta lax í ánni þegar hann var tíu ára.

„Fyrstu árin fór ég með pabba að veiða í Laxá í Aðaldal. Svo um árabil með stærri hópum. En núna seinni árin hefur þetta einkum verið fjölskyldutengdur veiðifélagsskapur,“ sagði Axel í samtali við Morgunblaðið.

Aðspurður hvort hann hefði ein-hverja tölu á þeim löxum sem hann hefur veitt í Laxá í Aðaldal, sagði Axel: „Nei, því miður. Ég hefði gjarnan viljað eiga upplýsingar um það, en ég hef ekki haldið utan um þetta, eins og ég hefði kannski átt að gera.“

Það var alveg skítkalt

„Já, það er alltaf jafnskemmtilegt að veiða,“ sagði Axel aðspurður, „en reyndar er það minna skemmtilegt, þegar það er mjög kalt, eins og var fyrir norðan fyrir tveimur vikum, þegar ég var að veiða í Laxá í Aðaldal. Það var alveg skítkalt.“

Axel segir að mismunandi veiði-svæði í Laxánni séu meira og minna allt uppáhaldsveiðisvæði. „Það er ekkert hægt að gera upp á milli þeirra. Sum eru alltaf góð en sum ekki, og þá slakar maður heldur á í sókninni á þau svæði. En svo geta þau verið bestu og skemmtilegustu svæðin næsta árið. Þetta er eitt af því sem gerir veiðina svo spennandi, að vita hvaða svæði eru góð á hverjum tíma, hvar veiðist og hvaða flugu hann vill taka. Þetta veit maður aldrei fyrirfram og þess vegna er þetta mjög skemmtilegt,“ sagði Axel Gíslason að lokum.

Axel Gíslason með 83 sentímetra hrygnu úr Brúarstreng í Laxá …
Axel Gíslason með 83 sentímetra hrygnu úr Brúarstreng í Laxá í Aðaldal fyrir réttum tveimur vikum. Axel hefur veitt í ánni 60 sumur í röð. mbl.is/Golli
Jakob V Hafstein, heitinn með með 36 punda hæng sem …
Jakob V Hafstein, heitinn með með 36 punda hæng sem veiddur var í Laxá í Aðaldal, Höfðahyl, 10. júlí 1942.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert