Hinn þekkta breska veiðikona Lilla Rowcliffe er þessa dagana að veiðum á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal, sem hún hefur gert á hverju sumri í rúmlega 25 ár.
Þótt hún sé orðin 91 árs þá lætur hún ekki háan aldurinn aftra sér frá því að fara á veiðar í stórum ám eins og Laxá. Í gær landaði hún meðal annars 103 cm hæng úr Presthyl sem var vigtaður 10,5 kíló.
Lilla hefur veitt víða um heim frá því hún byrjaði að stunda stangveiði í kringum fimmtugt og má segja að hún sé goðsögn í heimi fluguveiðinnar. Hún hefur meðal annars veitt stærsta lax sem landað hefur verið úr ánni Tay í Skotlandi. Þá hefur veitt mikið sjóbirtinga suður á Eldlandseyjum við Argentínu og landað þar yfir 30 punda fiski.
Hún er af mjög auðugu fólki komin og á ævintýralegt lífshlaup að baki eins og lýst er í bók Bubba Morthens, Áin, sem fjallar um Laxá í Aðaldal.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |