Netaveiðin í Ölfusá verið góð í sumar

Vitjað um laxanet í Ölfusá.
Vitjað um laxanet í Ölfusá. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Að sögn Atla Gunnarssonar, sem annast netalagnir fyrir landi Selfoss við Ölfusá, hefur veiðin í netin í sumar verið „svakalega“ fín.

Þó hafi dregið aðeins úr laxveiðinni síðustu daga, en þeim mun meira af vænum silungi komið í staðinn. Atli sagði að sumarið núna væri mjög svipað og í fyrra sem var fjarskalega gott veiðisumar. Helsti munurinn væri þó að laxinn núna væri almennt vænni en hann var í fyrra.    Sel­foss­bænd­ur eru með tvær lagn­ir, eina neðan við Ölfusár­brúna og aðra við flúðirn­ar skammt fyr­ir neðan Sel­foss­kirkju. Heim­ilt er að leggja net frá klukk­an 10:00 á þriðju­dög­um til klukk­an 22:00 föstu­daga og þarf að vitja um net­in fjór­um sinn­um á dag þann tíma sem þau eru niðri. Tíu daga frí verður á netaveiðinni í ágúst og svo heldur hún áfram eitthvað fram á haustið.   Í samtali við Einar H. Haraldsson á Urriðafossi, sem annast netalagnir neðan við fossinn, kom fram að júlí hefði verið mjög lélegur og lítið af eins árs fiski. Hins vegar hefði júní verið með besta móti og mikið af stórum vænum laxi. Einar sagði að veiðin í ár væri talsvert ólík því sem var í fyrra; þá var léleg veiði framan af í stærri fiskinum en svo varð júlí mjög góður og góðar heimtur á eins árs laxi. Í sumar hefur þetta snúist við og kvaðst Einar hafa netin niðri eins og reglur leyfðu þar til dregið hefði úr göngum síðsumars.   Samkvæmt tölum frá Veiðimálastofnun veiddust 1.259 laxar í netin í allri Ölfusá árið 2015 og 3.889 í Þjórsá.
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert