Samkvæmt fréttum frá Nesi við Laxá í Aðaldal kom enn eitt tröllið þar á land í morgun.
Fram kemur að það hafi verið Stefán Stefánsson sem veiddi 109 cm hæng úr Vitaðsgjafa og tók sá stóri Suray Shadow. Þetta er stærsti laxinn á landinu það sem af er en áður hefur 105 og 107 cm löxum verið landað á Nessvæðinu það sem af er sumri. Nessvæðið í Laxá er eitt þekktasta stórlaxasvæði landsins.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |