Aðeins dró úr laxveiði í sumar

Við Bárðarfoss í Brynjudalsá í Hvalfirði.
Við Bárðarfoss í Brynjudalsá í Hvalfirði. Hreggnasi

Hafrannsóknarstofnun birti í gær bráðabirgða samantekt yfir laxveiði í veiðiám landsins í sumar þar sem veiði er nú að mestu lokið. Veiði í ám sem byggja nær eingöngu á sleppingu gönguseiða er þó heimil til 20. október.

Fram kemur í þessari samantekt að heildarveiðin reyndist vera um 46.500 laxar á stöng. Þetta er um 10% yfir langtímameðaltali áranna 1974 til 2016 sem er 41.880 laxar. Veiðin núna í sumar var hins vegar var um 6.800 löxum minni en hún var sumarið 2016, þegar 53.329 laxar veiddust á stöng. Veiði í ám á suðvesturlandi reyndist þó meiri nú í sumar en árið á undan og veiði á Vesturlandi svipuð og var 2016.  Hins vegar dróst veiði saman í öðrum landshlutum á milli ára.

Í tölum um heildarlaxveiði eru þeir laxar sem upprunnir eru úr sleppingum gönguseiða og einnig þeir laxar sem er sleppt aftur í stangveiði og þeir endurveiddir. Laxar úr gönguseiðasleppingum eru viðbót við náttúrulega framleiðslu ánna og þegar veitt er og sleppt í stangveiði veiðast sumir fiskar oftar en einu sinni. Til að fá samanburð við fyrri ár var metið hver laxveiðin hefði orðið ef engu hefði verið sleppt aftur og veiði úr sleppingum gönguseiða var einnig dregin frá. Sú niðurstaða leiðir í ljós að stangveiði á laxi 2017 hefði verið um 37.000 laxar, sem um rétt um meðalveiði villtra laxa.

Laxveiðin sumarið 2017 fór fremur hægt af stað en góð veiði var í mörgum ám seinni hluta veiðitímans. Veiði af stórlaxi, sem dvalið hefur í tvö ár í sjó, var með minna móti og átti það einnig við um smálaxa nema á Vesturlandi.  

Þá kemur fram að breytileiki á milli ára í laxveiði hefur verið meiri nú síðustu árin en áður eru dæmi um. Helstu ástæður þess má rekja til breytinga á afföllum laxa í sjó. Fæðuskilyrði ráða þar miklu þar sem vöxtur, einkum á fyrstu mánuðunum í sjó, er minni í árum þegar laxgengd er lítil en meiri þegar laxgengd er meiri.

Vatnshiti í veiðiám hér á landi fór lækkandi frá árunum 2003 til 2015 og í kjölfar þess dró úr vaxtarhraða seiða sem leiðir til þess að gönguseiðaaldur hefur hækkar og framleiðsla ánna dregst saman. Það tekur því lengri tíma fyrir seiðin að ná göngustærð í ánum en áður.

Nánar má kynna sér þessa samantekt hér.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert