Inni á vef Húnaþings vestra er að finna ákvörðun um fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins fyrir komandi veiðitímabil. Frá þessu er greint í Húnahorninu.
Fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2017:
Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða tvenns konar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði.
1. Svæðin eru:
a) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnatungu.
b) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.
2. Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2016 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.
3. Veiðileyfin verða til sölu hjá Ferðaþjónustunni Dæli. Verð fyrir hvert leyfi er 9.000 krónur á dag.
4. Fjöldi veiðimanna á veiðisvæðin er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.
5. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.
Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.
Rjúpnaveiði í Víðidal
Rjúpnaveiði í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots í Víðidal verður eins og undanfarin haust takmörkuð.
Fyrstu tvær helgarnar eru seld leyfi í eignarland Húnaþings vestra í Gafli sunnan Gaflsgjár, og Lækjarkots, 4 byssur á dag.
Seinni tvær helgarnar eru seld leyfi í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots, 6 byssur á dag.
Verð fyrir hvert leyfi er 9.000 krónur á dag. Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli, sími 451-2566. Þar verður líka tilboð á gistingu á rjúpnaveiðitímanum. Netfangið er daeli@daeli.is. Allar upplýsingar um rjúpnaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.
Nánar má kynna sér þessar upplýsingar hér.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |