Athugasemdir við fyrirætlanir Fiskeldis Austurlands

Fiskeldi á Austförðum.
Fiskeldi á Austförðum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Landssamband veiðifélaga gerir fjölmargar athugasemdir við fyrirætlanir Fiskeldis Austurlands um allt að 21.000 tonna eldisframleiðslu í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Fram kemur á vef sambandsins að fyrirtækið hafa greint frá því að það standi til að nota ófrjóan lax að hluta til í eldið. 

„Landssambandið telur að fyrirhugað eldi ógni laxastofnum á öllu Austurlandi enda sýndi sig þegar eldisfiskur slapp í Norðfirði 2003 þá veiddist hann meðal annars í ám í Vopnafirði. Umfjöllun um þá hættu sem stafar af laxalús er fátækleg. Því er slegið fram að fyrir hendi séu náttúrulegar varnir gegn laxalús sem komi í veg fyrir vandamál vegna hennar. Ljóst er af fenginni reynslu af laxeldi í Arnarfirði að  lúsarvandamál koma upp þegar eldið er orðið að því umfangi sem þarna er fyrirhugað með alvarlegum afleiðingum fyrir villta stofna laxfiska.

Þá eru engar upplýsingar gefnar um þann ófrjóa lax sem fyrirhugað er að ala. Eini valkosturinn sem nú er völ á er þrílitna lax og samkvæmt reynslu Norðmanna liggur fyrir að lax sem hefur verið meðhöndlaður og gerður ófrjór með þeim hætti vex ekki við hitastig sjávar líkt og er fyrir Austurlandi. Fyrir slíku eldi er því hvorki fjárhagslegur grundvöllur né aðrar færar forsendur. Því verður aðeins ályktað að aðrar ástæður liggi að baki mjög óljósum og óútskýrðum áformum um eldi geldlaxa í sjókvíum í Berufirði og Fáskrúðsfirði.

Fyrirtæki framkvæmdaraðila, Fiskeldi Austurlands hefur verið í fréttum vegna samninga sem norskir aðilar hafa gert sín á milli um sölu 45,2% hlutafjár í félaginu. Í fréttamiðlinum Vísi kemur fram að endanlegt kaupverð muni ráðast af þeim leyfum sem Fiskeldi Austfjarða fær til laxaframleiðslu. Í fréttinni kemur fram að sú fjárhæð sem greidd er kunni að fjórfaldast gangi söfnun eldisheimilda að óskum. Þetta kann að vera ástæða þess að nú er þess freistað að afla leyfa undir því falska flaggi, að hefja skuli eldi geldstofna laxa í sjó. Hér eru gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi, eða allt að 3 milljörðum króna, ef vel tekst til við öflun leyfanna. Engar sérstakar reglur gilda um þessi efni aðrar en þær að fyrstur kemur - fyrstur fær. Fyrir slíkar upphæðir víkja hagsmunir umhverfisins.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert