Viðskipti
| mbl
| 14.8.2001
| 11:14
Kögun kaupir fyrirtækið Concorde Axapta Ísland
Kögun hf. hefur gengið frá kaupum og samningumum kaup á tæplega 86% hlutafjár í fyrirtækinu Concorde Axapta Ísland ehf semhefur umboð fyrir Axapta viðskiptahugbúnað.
Eignarhald hlutabréfanna verður hjá NavisionÍsland ehf. sem er dótturfélag Kögunar hf.
Auk þess að styrkja vöruframboð Kögunarsamsteypunnar umtalsvert er þess vænst að með kaupunum á Concorde Axapta Ísland náist samlegðaráhrif í rekstriNavision Ísland en Katrín Olga Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri NavisionÍsland mun stýra báðum fyrirtækjunum eftir kaupin.
Samningaumleitanir um kaupin hafa átt sér stað í nokkurn tíma en aðdragandi þeirra var samruni Damgaard A/S framleiðanda Concorde og Axapta hugbúnaðar við Navision Software A/S í Danmörku.
Vörur frá Navision A/S verða markaðssettar undir nöfnunum Navision Axapta, Navision Financials og Navision Attain sem er ný útgáfa sem kynnt verður nánar í haust.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















