Vaxandi starfsemi Teymis í Danmörku
Að sögn Elvars Steins Þorkelssonar, forstjóra Teymis hf., er stefnt að því að tvöfalda starfsmannafjöldann á þessu ári. Velta Teymis AS var um 40 milljónir króna á árinu 2001 og gera áætlanir ráð fyrir að veltan verði á bilinu 300 til 360 milljónir króna á árinu 2002.
Elvar Steinn segir að hugmyndin að baki Teymi í Danmörku sé sú sama og að baki starfsemi Teymis á Íslandi, og sé rökrétt framhald af fjárfestingarstefnu fyrirtækisins á erlendri grund.
"Teymi hf. hefur á undanförnum árum fjárfest umtalsvert í dóttur- og hlutdeildarfélögum, sem og í starfsemi fyrirtækisins hér á landi. Starfsemin hér á landi er nú víðtækari en áður þar sem hún nær einnig til lausna á sviði viðskipta- og veflausna til viðbótar við bakendalausnir eins og gagnagrunna og viðfangamiðlara sem Teymi hefur alla tíð lagt mikla áherslu á," segir hann.
Auk dótturfélagsins í Danmörku hóf Teymi starfsemi Teymi AB ári áður í Svíþjóð en starfsemi þess hefur verið hætt, einkum vegna verkefnaskorts. Ólíkt starfseminni í Svíþjóð, sem byggðist á lausn fyrir fjármálageirann, þá segir Elvar Steinn að hugmyndafræðin að baki dótturfélagi Teymis í Danmörku sé sú sama og býr að baki starfsemi fyrirtækisins hér á landi þar sem Teymi,hf. er sölu- og þjónustuaðili Oracle.
"Munurinn liggur hins vegar í því að Oracle Corporation hefur umfangsmikla starfsemi í Danmörku en enga hér á landi. Þannig að markhópur Teymis AS er fyrst og fremst viðskiptavinir Oracle í Danmörku. Sú staðreynd hefur ekki breytt því að Oracle hefur fagnað komu Teymis á danska markaðinn," segir Elvar Steinn. "Ástæða þess er sérstaða Teymis AS á danska markaðnum.
Teymi er eina hugbúnaðarfyrirtækið þar í landi, fyrir utan Oracle Corp., sem helgar sig eingöngu Oracle-lausnum.
Allir aðrir samstarfsaðilar Oracle selja einnig eigin lausnir og/eða lausnir frá þriðja aðila. Önnur hugbúnaðarfyrirtæki á markaðnum hafa þannig ekki skuldbundið sig með þessum hætti Oracle-tækni og lausnum.
Teymi hefur að auki sýnt það á undanförnum árum að fyrirtækið býr yfir þekkingu á sviði Oracle-lausna sem stenst ýtrustu kröfur Oracle Corporation og er því kærkomin viðbót á danska markaðinn."
Starfsemi Teymis á Íslandi nýtist Teymi AS sem bakland, að sögn Elvars Steins, og sækir Teymi AS þekkingu til Íslands bæði hvað varðar gagnagrunna og viðfangamiðlara en ekki síst varðandi veflausnir. Þannig má segja að hlutverk Teymis AS sé annars vegar að hasla sér völl í Danmörku sem sjálfstætt fyrirtæki á sviði Oracle-lausna en fyrirtækið gegnir hins vegar óneitanlega einnig því hlutverki að stækka markaðssvæði Teymis á Íslandi með öflun verkefna í Danmörku.
"Mikill akkur er í því fyrir Teymi að fá fleiri verkefni til landsins, ekki síst í ljósi þess að taxtar í hugbúnaðargeiranum í Danmörku eru talsvert hærri en þeir eru hér á landi. Þannig eru vonir bundnar við að Teymi AS skapi móðurfélaginu á Íslandi verkefni á sviði hugbúnaðarsölu, hugbúnaðargerðar, veflausna, ráðgjafar og síðast en ekki síst á sviði þjónustu í tengslum við Oracle-lausnir," segir Elvar Steinn.
Einn helsti viðskiptavinur Teymis AS er TDC Kabel TV sem áður var hluti af TeleDanmark.
Teymi AS vinnur nú að nokkrum verkefnum fyrir fyrirtækið og þar á meðal hönnun og smíði umsýslukerfis ("self service") fyrir netþjónustu TDC Kabel TV.
"Þar er um að ræða umfangsmikið verkefni og nýtir Teymi AS krafta Teymis á Íslandi og þá sérstaklega á sviði veflausna þar sem Teymi býr yfir umfangsmikilli þekkingu á sviði gagnagrunnstengdra vefja," segir Elvar Steinn Þorkelsson.



















