Fjarskiptarisinn Telia semur við Teymi A/S

Dótturfyrirtæki Teymis í Danmörku, Teymi A/S, hefur skrifað undir samning við sænska fjarskiptarisann Telia um rekstur og þjónustu í tengslum við viðskiptalausnina Oracle e-Business Suite. Telia er stærsti viðskiptavinur Oracle í Danmörku og einn sá stærsti á Norðurlöndum "og því er um mikilvægan samning að ræða fyrir Teymi sem um þessar mundir er að hasla sér völl í Danmörku sem sérhæft þjónustufyrirtæki á sviði Oracle-lausna," segir í frétt frá Teymi. Þrjú af fimm stærstu fjarskiptafyrirtækjum Danmerkur eru nú meðal viðskiptavina Teymis A/S. Hörð samkeppni

Samkvæmt upplýsingum Teymis var hörð samkeppni um samninginn við Telia og meðal þeirra þeirra fyrirtækja sem kepptust um að ná honum voru risar á danska UT-markaðnum eins og Oracle, Consit og WM-data sem er stærsta hugbúnaðarfyrirtæki Norðurlanda.

"Ástæða þess að Teymi varð fyrir valinu er fyrst og fremst sú að Telia leit svo á að Teymi væri eini aðilinn á danska markaðnum sem gæti boðið sambærilega þjónustu og Oracle Corporation. Þar skipti sköpum sú reynsla og þekking sem Teymi á Íslandi býr yfir," segir í tilkynningu Teymis.

Þar segir ennfremur: "Telia er þriðja fjarskiptafyrirtækið í Danmörku sem semur við Teymi A/S og eru nú þrjú af fimm stærstu fjarskiptafyrirtækjum Danmerkur meðal viðskiptavina Teymis. Áður hafði Teymi samið við TDC Kabel TV, áður TeleDanmark, og Debitel sem er fimmta stærsta fjarskiptafyrirtæki Danmerkur.

Áætlanir gera ráð fyrir að velta Teymis A/S á árinu 2002 verði rúmar 300 milljónir. Fjöldi starfsmanna Teymis A/S er nú um 20. Styrkur Teymis A/S liggur fyrst og fremst í reynslu og þekkingu Teymis á Íslandi. Enn fremur hefur sérstaklega vel tekist til við mönnun Teymis A/S, en fyrirtækið er fyrst og fremst skipað dönskum Oracle-sérfræðingum. Teymi A/S nýtur þeirrar sérstöðu á danska upplýsingatæknimarkaðnum að vera eina fyrirtækið fyrir utan Oracle Corporation sem sérhæfir sig á sviði Oracle-tækni. Teymi A/S er í 100% eigu Teymis hf á Íslandi.

Teymi hf var stofnað árið 1995 og hefur fyrirtækið stækkað ört síðan. Í dag er fjöldi starfsmanna um 70 og er fyrirtækið með starfsemi í tveimur löndum; Íslandi og Danmörku. Teymi er helsti sölu- og þjónustuaðili Oracle-hugbúnaðar á Íslandi. Oracle Corporation er annar stærsti hugbúnaðarframleiðandi heims. Flest af stærstu fyrirtækjum landsins eru meðal viðskiptavina Teymis. Sérstakir Oracle-samstarfsaðilar Teymis í hugbúnaðariðnaði eru um þrjátíu talsins."
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir