Teymi A/S yfirtekur danskt hugbúnaðarfyrirtæki
Elvar Steinn Þorkelsson, forstjóri Teymis, undirritaði yfirtökusamninginn í Kaupmannahöfn mánudaginn 13. maí.
"Með þessari yfirtöku á PROGREZ og nýlegum viðskiptasamningum sem Teymi A/S hefur gert við mörg skandinavísk stórfyrirtæki erum við að treysta stöðu fyrirtækisins til langframa. Teymi A/S hefur á skömmum tíma getið sér orð fyrir að vera einn öflugasti og traustasti samstarfsaðili Oracle í Danmörku, einkum í kringum þjónustu á Oracle-hugbúnaði. Við erum hreykin af því orðspori," sagði Elvar Steinn við undirritun samningsins.
Sérhæfing PROGREZ fólst einkum í vinnu með samtvinnuð umhverfi Oracle-lausna og Navision-viðskiptahugbúnaðar á borð við Concorde/XAL og Axapta. Fyrirtækið hefur jafnframt þróað og selt hugbúnaðinn OraGuard til nokkurra tuga fyrirtækja á Norðurlöndum, en þar er á ferðinni umsjónar- og eftirlitsbúnaður fyrir Oracle-gagnagrunna. Teymi A/S tekur nú við dreifingarrétti á OraGuard-búnaðinum á Norðurlöndum og að sögn forstjóra Teymis binda menn talsverðar vonir við velgengni í þeim efnum þar og síðar annars staðar í Evrópu.
Meðal viðskiptavina Teymis A/S eru nú TDC Kabel-TV, Expert Danmark, Dansk El-forbund, Debitel, Rosti, Top Toy, Leo Pharmaceutical, Chr. Hansen, Novo Nordisk, Astra Danmark, Glaxo Wellcome / Glaxo Smith&Kline, DBS, Mobilix, Telia og fleiri.
Hjá Teymi A/S starfa nú um tuttugu manns. Áætluð velta fyrirtækisins á yfirstandandi ári er um 230 milljónir króna og reiknað er með hagnaði af starfsemi félagsins.



















