Microsoft með skrifstofu á Íslandi
Elvar var ábyrgur fyrir öllu sölu- og markaðsstarfi Oracle Corporation á Íslandi frá árinu 1991 og stofnaði fyrirtækið Teymi hf. ásamt Opnum kerfum og Tæknivali árið 1995. Hann var forstjóri fyrirtækisins þar til síðastliðið haust er Teymi og Skýrr sameinuðust.
Alfarið í eigu Microsoft
Elvar segir að til að byrja með verði starfsemi Microsoft Ísland stýrt frá Microsoft í Danmörku, og eins og þar í landi verði fyrirtækið alfarið í eigu Microsoft. Hann segir að ástæðan fyrir því að Microsoft vilji koma sér fyrir á Íslandi sé sú að fyrirtækið vilji styrkja stöðu sína hér á landi, með samhæfðu og öflugu samstarfi við sína samstarfsaðila. Horft verði til núverandi samstarfsaðila jafnt sem nýrra aðila, sem séu tilbúnir að bjóða fram krafta sína og virðisauka til handa viðskiptavinum Microsoft hér á landi. Í annan stað sé mikill vilji fyrir því að reyna að koma höfundarréttarmálum í viðunandi horf fyrir Microsoft, en þau séu alls ekki í góðu lagi hér á landi.Á fullri ferð í þróun
"Áhrifa Microsoft gætir á öllum stigum upplýsingatækninnar. Með .NET-grunntækninni býður Microsoft þá tækni, sem gerir næstu kynslóð Netsins að veruleika. Microsoft er á fullri ferð í þróun þessarar grunntækni, sem gerir kleift að allar núverandi upplýsingar má hagnýta og dreifa, óháð stýrikerfum, gagnagrunnum eða forritunarmálum.Markaðssetning á XP og Office XP hefur gengið mjög vel frá því að þessi hugbúnaður kom á markað, og ennfremur ýmiss konar annar hugbúnaður og tölvubúnaður, sem Microsoft markaðssetur. Á næstu mánuðum og misserum verður engin breyting á, nýjar vörur, nýjar útgáfur munu líta dagsins ljós á öllum sviðum starfseminnar. Ég hlakka því mikið til þess að vera í forsvari fyrir þetta stærsta og öflugasta hugbúnaðarfyrirtæki heims á Íslandi," segir Elvar.
Helstu samstarfs- aðilarnir fjórir
Tölvudreifing hf. sér um dreifingu á öllum Microsoft hugbúnaði á Íslandi. Þá eru Aco-Tæknival hf., EJS hf., Opin kerfi hf. og Nýherji hf. helstu söluaðilar Microsoft hér á landi.Á síðasta ári var greint frá því að Microsoft Corporation hefði keypt danska fyrirtækið Navision Software, sem varð í framhaldinu hluti af Microsoft Business Solutions. Navision er dreifingaraðili fyrir viðskiptalausnir Microsoft. Navision Ísland dreifir þeim hugbúnaði hér á landi.



















