Íslandsbanki kominn með fjórðungshlut í Straumi
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka segir um aukinn hlut bankans í Straumi að fyrr í sumar hafi eignarhlutur Íslandsbanka verið 22,5%. "Það var áður en Straumur greiddi fyrir hlutabréf í Framtaki fjárfestingarbanka með eigin bréfum en við þau viðskipti þynntist út eignarhlutur okkar í félaginu og var orðinn rúm 17%. Með kaupunum nú förum við aftur í fyrri stærð og rétt rúmlega það."
Um það hvort bankinn muni halda sig við þennan hlut segist Bjarni eiga von á því að bankinn muni eiga 20-25% eignarhlut í félaginu, í samræmi við yfirlýsingar þess efnis í mars sl.
Bankarnir að nálgast 40%
Íslandsbanki og tengdir aðilar hafa nú samkvæmt heimildum Morgunblaðisins yfir að ráða u.þ.b. 38-39% hlutafjár í Straumi en Landsbankinn og tengdir aðilar ráða yfir um 37%.Samkvæmt reglum Kauphallar Íslands um félög sem skráð eru á hlutabréfamarkaði, líkt og Straumur, myndast skylda til að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð þegar eignarhlutur eða atkvæðaréttur tengdra aðila fer yfir 40%. Bankarnir eru nú báðir farnir að nálgast það mark. Ekki er skilgreint í lögunum um verðbréfaviðskipti, nr. 33 frá 2003 hver eignartengsl hluthafa verði að vera til að eignarhlutir þeirra teljist saman, þegar metið er hvort yfirtökuskylda hafi myndast. Í tilviki Íslandsbanka eru lífeyrissjóðir meðal þeirra hluthafa sem tengjast bankanum. Í tilviki Landsbankans er um að ræða aðaleigendur bankans og náinn samstarfsmann þeirra.
Meðal seljenda hlutabréfanna sem Íslandsbanki keypti í gær voru samkvæmt heimildum Morgunblaðsins Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins sem átti tæplega 59 milljónir hluta eða 1,4% hlutafjár, og Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, sem átti tæpar 38 milljónir hluta eða 0,9% hlutafjár. Einnig seldi Efling stéttarfélag sinn eignarhlut og aðrir smærri hluthafar.
Alls voru 43 viðskipti fyrir 4.247 milljónir króna með bréf í Straumi í Kauphöll Íslands í gær. Stór hluti þeirra viðskipta er vegna framvirkra samninga sem áður hefur verið greint frá vegna kaupa Straums á Framtaki.
Markaðsverð 19 milljarðar
Lokaverð bréfanna í Straumi í gær var 4,65 krónur á hlut og var það 1,1% hækkun frá deginum áður. Félagið er því metið á 19,3 milljarða að markaðsverði. Um áramót var verð hlutabréfa í Straumi 3,12 krónur á hlut og var markaðsverð félagsins samkvæmt því 7,9 milljarðar. Þá var hlutafé í félaginu um 2,5 milljarðar króna að nafnverði en er nú ríflega 4 milljarðar, fyrst og fremst vegna kaupanna á Framtaki. Þess má geta að markaðsvirði Framtaks var u.þ.b. 3,5 milljarðar um áramót.Landsbanki Íslands hefur aukið hlut sinn í Straumi umtalsvert að undanförnu og á nú tæp 20% hlutafjár. Eignarhaldsfélagið Samson, sem er aðaleigandi bankans, á nú rúm 13% í Straumi og á mánudag keypti bankinn 3,5% hlut í Straumi og seldi áfram til Sindra Sindrasonar, varamanns í stjórn Landsbankans. Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka Íslands, og einn eigenda Samsonar sagði í yfirlýsingu sem birtist í Morgunblaðinu í gær að yfirtaka á Straumi hafi ekki verið markmið Landsbankans og Samsons, sem eiga samtals um 34% hlutafjár í Straumi.
"Við viljum komast í aðstöðu til að auka virði fjárfestinga Straums. Markmið okkar er að losa um flókin eignatengsl í félögum og auka arðsemi þeirra," sagði Björgólfur í yfirlýsingunni. Þá var hann sagður telja að stór hluti fjárfestinga hér á landi þjóni þeim tilgangi að vernda völd og áhrif á kostnað góðrar ávöxtunar og hagkvæmni í rekstri.



















