Viðskipti
| mbl
| 17.10.2003
| 20:40
Bandarísk hlutabréf lækka en gengi deCODE hækkar
Gengi bandarískra hlutabréfa lækkaði á fjármálamörkuðum vestanhafs í dag. Fjárfestar voru m.a. áhyggjufullir vegnaafkomu tæknifyrirtækja. Dow Jones-vísitalan lækkaði um 69,93 stig eða 0,71% og endaði í 9.721,79 stigum. Nasdaq-vísitalan lækkaði um 37,78 stig eða 1,94% og endaði hún í 1.912,36 stigum.
Gengi deCODE, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, hækkaði um heila 1,72 dollara hluturinn sem er 33,93% hækkun og stendur hluturinn nú í 6,79 Bandaríkjadölum. Þessa hækkun má vafalítið rekja til frétta frá Íslenskri erfðagreiningu í dag um að fyrirtækið hafi fundið erfðavísi sem eykur líkur á hjartaáfalli.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















