Landsbanki fjórði stærsti í Íslandsbanka
Lífeyrissjóður verslunarmanna, Lífeyrissjóðurinn Framsýn og Straumur fjárfestingarbanki eru enn sem fyrr þrír stærstu eigendur Íslandsbanka, samkvæmt nýjum hluthafalista frá Íslandsbanka. Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 hafa hins vegar færst í sjöunda sæti úr því fjórða frá listanum sem Morgunblaðið birti í gær, enda hefur sjóðurinn selt 50 milljón hluti í bankanum eða 0,4% heildarhlutafjár.
Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær seldu MP fjárfestingarbanki, Fjárfestingarfélagið Atorka og Afl fjárfestingarfélag alla hluti sína í Íslandsbanka á miðvikudag, alls 3,5% hlutafjár í bankanum. Þess má geta að Hrómundur ehf. sem situr í tíunda sæti hluthafalistans er félag í eigu Einars Sveinssonar.
Landsbankinn átti áður ríflega 2,9% hlutafjár eða tæplega 310 milljónir hluta. Bankinn á nú rúmlega 517 milljónir hluta í Íslandsbanka en miðað við lokaverð bréfanna í Kauphöll Íslands í gær (7,10) er andvirði hlutar Landsbankans tæpir 3,7 milljarðar króna.
Viðskipti með bréf í Íslandsbanka námu rúmum einum milljarði í gær, þar af voru tvö stór viðskipti, annars vegar með 55 milljónir hluta og hins vegar með 50 milljónir hluta (samtals 1% hlutafjár) á genginu 7,15. Kaupverðið nam því samtals um 751 milljón króna.
KB banki með 3% í Landsbankanum
KB banki hefur keypt 2% eignarhlut Vátryggingafélags Íslands (VÍS) í Landsbanka Íslands. KB banki á nú 3% hlutafjár í Landsbankanum og er fjórði stærsti hluthafi hans.Hlutir KB banka eru samkvæmt hluthafalista frá Landsbankanum í gær rúmlega 225 milljónir talsins. Miðað við lokaverð bréfanna í Kauphöll Íslands í gær (6,90) er verðmæti bréfanna 1,5 milljarðar króna.



















