Viðskipti
| mbl
| 25.2.2004
| 10:16
| Uppfært
12:10
Helgi Magnússon kaupir á 8,8% í Íslandsbanka
Helgi Magnússon, bankaráðsmaður í Íslandsbanka, keypti í gær fyrir hönd óstofnaðs einkahlutafélags í eigu hans sjálfs 8,8% hlutafjár í bankanum. Hlutabréfin voru keypt af Landsbanka Íslands og Landsbanka Luxembourg með framvirkum samningum og á Landsbanki því ekki lengur hlut í Íslandsbanka.
Um er að ræða tvo framvirka samninga upp á 450.530.000 hluti annars vegar og 476.208.000 hins vegar. Lokagjalddagi er 1. júní nk. en atkvæðisréttur og réttur til arðs flytjast strax til kaupanda.
Í tilkynningu um kaupin segir að ýmsir aðrir aðilar muni koma að þessari fjárfestingu á síðari stigum og verði greint frá því hverjir það verða þegar þar að kemur.
Landsbankinn átti fyrir viðskiptin 4,43% í Íslandsbanka og hafði að auki gert framvirkan samning um sölu á kr. 351.918.942 að nafnvirði, eða 3,35%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















